Skinfaxi - 01.02.1976, Blaðsíða 3
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVII. árg — 1. hefti 1976. — Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Eysteinn Þorvaldsson. — Út koma 6 hefti á ári hverju.
ÁHUGAMENN OG
ATVINNUMENN
Það gerðist núna fyrir skömmu annað árið
i röð að Samtök íþróttafréttamanna kusu at-
vinnumann í knattspyrnu „íþróttamann ársins"
1975. Þessi útnefning hlýtur jafnan mikla oþ-
inbera auglýsingu vegna þess að það eru ein-
mitt allir áhrifamestu fjölmiðlar landsins sem
að henni standa: dagblöðin og ríkisútvarþið.
En einmitt þetta fyrirkomulag hlýtur strax að
orka tvímælis. Örfálr aðilar hafa tekið sig
saman um það að úthluta þessari viðurkenn-
ingu hverju sinni. Það gefur auga leið að slíkt
fyrirkomulag hlýtur að bjóða heim auðskipu-
lagi hagræðingu í kosningunni. Eigi að síður
hefur þessi útnefning fram á síðustu ár tvi-
mælalaust haft áróðursgildi fyrir íþróttirnar
almennt, þ. e. allt þangað til að atvinnumenn-
irnir voru settir í öndvegi.
Hér er ekki verið að gera lítið úr þeim ís-
lensku íþróttamönnum sem gerst hafa atvinnu-
menn í knattspyrnu. Forsendurnar fyrir íþrótta-
iðkun þeirra eru hins vegar gjörólikar og að-
stæður þeirra allt aðrar en hjá íþróttafólki hér
á landi. Þessir atvinnumenn hafa staðið sig
vel og orðið íslandi til sóma, og því ber að
fagna út af fyrir sig. En íslenskt íþróttafólk
sem heldur tryggð við heimalandið, hefur ekki
þann aðbúnað né tækifæri til æfinga sem þeir
hafa hvað þá heldur fjárhagslega umbun.
iþróttafréttamönnum ætti að vera Ijóst að
þessi aðstöðumunur er svo stór að útilokað
er að atvinnumenn í útlöndum og íþróttafólk
á islandi geti keppt á jafnréttisgrundvelli um
afreksverðlaun þau sem hér um ræðir. Útnefn-
ingin síðustu tvö árin er ekki líkleg til að
efla almennan íþróttaáhuga á islandi. Með
henni er vegið að frjálsu áhugastarfi í íþrótt-
um hér heima fyrir. Útnefning íþróttamanns
ársins í hverri iþróttagrein sem kosið er um
innan sérsambandanna, nýtur miklu meiri vin-
sælda meðal íþróttafólks, en flestir fjölmiðl-
arnir virðast hafa tekið sig saman um að þegja
þunnu hljóði um þær viðurkenningar.
Ey. Þ.
SKINFAXI
3