Skinfaxi - 01.02.1976, Blaðsíða 4
AFREKASKRÁ UMFÍ
í frjálsum íþróttum fyrir árið 1975 er birt
í þessu hefti.
Hún leiðir í ljós
að allmörg
UMFÍ-met hafa
verið sett á sl.
ári. Flest met
setti Ragnhildur
Pálsdóttir, U.M.-
S.K., sem hér
birtist mynd af.
Hún setti met í
800 m, 1500 m og
3000 m hlaupi.
HREINN HALLDÓRSSON,
kúluvarparinn góðkunni, sem allt til þessa
hefur keppt und-
ir merki heima-
héraðs síns,
HSS, hefur tekið
þá ákvörðun að
fórna óvenju-
miklum tíma og
fjármunum til
búa sig sem best
undir keppnina
á olympíuleik-
unum í Montreal
í sumar. Segja
má að Hreinn sé
um það bil að
Ievgja af stað á
ÓL, og frá því
segir nokkuð í
opnu blaðsins.
FORSÍÐUMYNDIN
er að þessu sinni listaverk eftir þýska Iista-
manninn Peter Schnurpel. Þessi grafík-Iista-
maður er 34 ára gamall og hefur sérstaklega
Iagt sig eftir fyrirmyndum úr íþróttalífinu, en
slíkt er harla fátítt meðal myndlistarmanna.
Schnurpel stundar sjálfur íþróttir, en drög
að myndum sínum gerir hann þegar hann
fylgist með kappmótum.
Myndin á forsíðunni heitir SKIPTINGIN
og má heita einkennandi fyrir myndir hans.
Eins og sjá má, hirðir hann ekki svo mjög um
smáatriði heldur leitast hann við að Iáta ein-
faldar línur á hvítum grunni sýna sem sterk-
ust tákn um áreynslu og hvíld og allar hreyf-
ingar íþróttamannsins þess á milli.
Myndin hér fyrir ncðan er eftir sama lista-
mann og hún heitir auðvitað KÖRFUKNATT-
LEIKUR: Hún er gerð eftir svipuðum hug-
myndum. Sérstaklega er eftirtcktarvert hvaða
brögðum hann beitir til að leggja áherslu á
uppstökk körfuknattleiksmannanna að körf-
unni.
4
SKINFAXI