Skinfaxi - 01.02.1976, Blaðsíða 17
píuleikum, ætlar hann að einbeita sér að
asfingum. Hann fer til Vestur-Þýskalands
í febrúar ásamt hinum góðkunna kastara
Guðna Halldórssyni. Þar verða þeir við
æfingar í tvo mánuði hjá Pieter Schiene,
kurmum kastþjálfara, sem kom hingað til
lands sl. sumar.
Hreinn hefur sem kunnugt er með
metinu í sumar þegar náð lágmarksár-
angri þeim sem settur var til þátttöku í
olympíuleikunum, en hann var 18,80. Til
'þess að komast í aðalkeppnina á sjálfum
Þessi vígalegi
tröllkarl, Brian
Oldfield, USA,
fleyg-ði kúlunni
22,86 m. í fyrra
með eins konar
kringlukasts-
aðferð. Hann ér
yfirlýstur at-
vinnumaður og
þess vegna ekki
á afrekaskránni.
olympíuleikunum þurfa menn að kasta
a. m. k. 19,30 m. í forkeppninni, og yfir
það mark ætlar Hreinn sér að kasta. En
víst er að það vei-ður hörð keppni á ol-
ympíuleikunum, og þar eru margir sem
ætla sér stóran hlut. Um leið og við ósk-
um Hreini alls hins besta í þeirri hörðu
viðureign, birtum við til fróðleiks skrá
um árangur 15 bestu kúluvarpara á síð-
asta ári:
Hans Hoglund -Svíþj.)............ 21,33
A1 Feuerbach (USA)............... 21,25
H-J. Rothenburg (A-Þýskal)....... 20,98
Udo Beyer (A-Þýskal.) ........... 20,97
Hreinn í keppni á Laugardalsvellinum. Hann
hefur tekið stórstígum framförum á hverju
ári undanfarið.
Hartmut Briesenick (A-Þýskal.) . . 20,96
Hans Peter Gies (A-Þýskal.)...... 20,92
Geoff Gapes (Bretl.).............. 20,80
Terry Albritton (USA)............. 20,75
Jesse Stuart (USA)................ 20,73
Jaroslav Brabec (Tékk.) .......... 20,45
Vladislav Komar -Pól.)............ 20,44
George Woods (USA) ............... 20,43
Ralf Reichenbach (V-Þýskal.) .... 20,39
Dana LeDuc (USA).................. 20,32
Norbert Jahl (A-Þýskak)........... 20,31
SKINFAXI
17