Skinfaxi - 01.02.1976, Blaðsíða 7
þáttur ÆRR í að létta UMFÍ og öðrum
æskulýðshreyfingum námskeiðshald og
aðra félagsmálafræðslu. Sá þáttur er fvrst
°g fremst útgáfustarfsemi sem áhuga-
mannasamtökin hafa ekki fjárhagslegt
bolniagn til að standa undir, svo og að
efna til námskeiða fyrir leiðbeinendur
sem ætla að hagnýta það kennsluefni sem
ÆRR hefur gefið út. Á námskeiðum
þeim sem haldin hafa verið innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar hefur að
mestu verið stuðst við fyrri möppu ÆRR,
en segja má að á seinni möppuna sé
ekki komin reynsla enn þá, og á hún
því eflaust eftir að endurskoðast og
breytast þegar hún verður tekin í al-
menna notkun.
2000 manns á námskeiðum
í dag hafa alls verið haldin á vegum
ungmennafélaganna milli 90 og 100 nám-
skeið sem áætla má að upp undir 2000
manns hafi sótt. Þótt námskeiðin séu
haldin af ungmennafélögum hefur þeirri
reglu verið haldið, að þau eru jafnan
öllum opin sem áhuga hafa á því að
fræðast.
Aukin fræðsla — aukið starf
Gildi þessara námskeiða hefur glögg-
lega komið í Ijós á þeim svæðum sem
þau hafa verið haldin, í auknu og fjöl-
breyttara félagsstarfi og oft í þátttöku
nýrra manna í starfinu. Þá ‘hafa þau tví-
mælalaust stuðlað að auknum þætti ungs
fólks í forystusveit hreyfingarinnar víðs
vegar um landið.
Vandamálið sem við eigum við að
glíma í dag, er fyrst og fremst það hvað
tíðni námskeiðanna er mismunandi eftir
félagssvæðum og kemur þar margt til
s. s. mismunandi greiðar samgöngur,
kennaraskortur o. fl. Sum héraðssam-
böndin hafa lokið við að halda eitt eða
fleiri námskeið í öllum félögum innan
sinna vébanda á meðan ekkert námskeið
hefur verið haldið í öðnim.
Þó hafa verið haldin viðurkennd nám-
skeið hjá öllum héraðssamböndum nema
fjórum og hjá tveim af þeim félögum
sem beina aðild hafa að UMFÍ.
Það er því brýnasta verkefni félags-
málaskólans í dag að reyna að hlaupa
undir bagga með þeim sem skemmst eru
á veg komnir í þessari starfsemi og
tryggja það að hringnum verði lokað,
ekki aðeins hvað varðar námskeið, held-
ur einnig að öll félagssvæði okkar eignist
hæfa leiðbeinendur sem reiðubúnir eru
til að starfa og hafi þá þekkingu, vilja og
áræði sem til þarf.
SKINFAXI
7