Skinfaxi - 01.02.1976, Blaðsíða 6
Þessi mynd var tekin á
námskeiði Félagsmála-
skóla UMFÍ hjá
íþróttafélaginu Leiftri
á Ólafsfirði í desem-
bermánuði sl. (Ljósm.:
S. Geirdal).
StofnaSur fyrir 4 árum
Félagsmálaskólinn var stofnsettur með
reglugerð á sambandsþinginu á Húna-
völlum 30.-31. okt. 1971. í henni er gert
ráð fyrir að stjórn UMFÍ sé skólastjóm
hans og að hún kjósi sér skólastjóra. Arið
1972 var síðan kosin sérstök fræðslu-
nefnd sem vann að endurskipulagningu
fræðslumála UMFÍ.
Samvinna við ÆRR
Með tilkomu Æskulýðsráðs ríkisins
breyttist skipan fræðslumála UMFÍ þar
sem eitt aðal verkefni ÆRR skyldi vera
að gefa út félagsmálanámsefni og halda
námskeið fyrir leiðbeinendur í félags-
málum. Töluvert af námsefni ÆRR er
unnið upp úr námsefnum félagsmála-
skóla UMFÍ, enda áttu fulltrúar UMFÍ
stóran þátt í samningu þess.
Haldin hafa verið tvö regluleg leið-
beinendanámskeið á vegum ÆRR. Hið
fyrra var haldið að Leirárskóla 26.-29.
okt. 1972, en hið síðara að Flúðum,
Hmnamannahreppi, 31. okt. — 2. nóv.
1975. Tókust bæði þessi námskeið mjög
vel. Stór hluti þátttakenda á námskeiðun-
um voru úr röðum ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Bæði þessi námskeið hafa
verið UMFÍ mikill stuðningur í fræðslu-
og kynningarstarfsemi UMFÍ og sam-
bandsaðilanna.
Samtals hefur ÆRR viðurkennt sem
leiðbeinendur innan UMFÍ á milli 9Ö og
100 félaga sem rétt hafa til að kenna
námsefni ÆRR. Þar af hafa 30-40 stjóm-
að námskeiðum.
ÆRR hefur nú gefið út framhalds-
námsefni sem kallað er „Félagsmálanám-
skeið 1I“. Lítil revnsla er enn komin á
það efni og er það ekki alveg full frá-
gengið. Áformað er að kalla innan
skamms saman þá sem kennt hafa náms-
efnið, og ræða um nánari tilögun kennsl-
unnar. Eru það eingöngu héraðssam-
bönd ungmennafélaganna sem sinnt hafa
kennslu í námsefni II.
Hér að ofan hefur verið rakinn nokkuð
6
SKINFAXI