Skinfaxi - 01.02.1976, Blaðsíða 14
ÍSBÖÐ OG SJÓSUND
KALT — EN HOLLT
Til er fólk sem baðar sig í ísköldu
vatni daglega allan ársins hring. Stærsta
skemmtun þess er að brjóta vök á ísinn
að vetrarlagi og svamla þar um stund.
Þýskur blaðamaður sem nýlega var á
ferð í Norðaustur-Síberíu fylgdist með
nokkrum „ísköllum" sem voru að baða
sig í vök á stöðuvatni við Novosibrisk.
Vatn þetta er notað til siglinga á sumrin
og auðvitað til sunds en á vetuma til
baða og skautaferða. Víða um lönd, m.a.
í Evrópu stunda menn slík ísböð.
Að loknu Nýárssundinu 1912 stilltu sund-
kappamir sér upp fyrir framan myndavélina,
bráðhressir eftir sund í svölum sæ um há-
vetur. Sitjandi frá vinstri: Sigurjón Péturs-
son, Erlingur Pálsson og Guðmundur Kr. Guð-
mundsson. Standandi: Jón Tómasson, Jón
Sturluson, Sigurjón Sigurðsson og Sigurður
Magnússon.
Margir spyrja hvort þetta sé ekki
óhollt.
Læknar segja það síður en svo óhollt
svo fremi sem fólk byrji á þessu á réttan
'hátt. Ekki sé ráðlegt fyrir neinn að byrja
á shku ísbaði undirbúningslaust að vetr-
arlagi. Ef byrjað sé að sumarlagi og síð-
an haldið áfram reglulega geti slík böð
verið ágæt fyrir heilsunia. Þau geti verið
styi'kjandi, komið í veg fyrir kuldasjúk-
dóma og hindrað ýmis konar smitun.
Varðandi æðasjúkdóma geti slíkt ískalt
lost líka komið að gagni. Meðan baðað
er í kuldanum dragast æðamar saman, en
þegar menn koma upp úr og þeim
hitnar, þá þenjast æðamar mjög út, og
blóðrennslið eýkst vemlega. Gæta verð-
þess að vera ekki lengi í slíku baði.
íslenskir ískallar
Ekki er okkur kunnugt um að slík böð
sóu iðkuð hér á landi. En sú var tíðin
að íslenskir sundmenn kepptu í sundi
á nýársdag hvemig sem viðraði í ísköld-
um sjónum í Reykjavíkurhöfn. „Nýárs-
sundið“ svokallaða var háð á hverjum
nýársdegi forfallailítið á árunum 1910—
1923. Keppt var í 50 metra sundi. Það var
norðan stormur og kuldi þegar fyrsta ný-
árssundið var háð árið 1910, en keppend-
urnir, 5 að tölu, létu það ekki á sig fá
og stungu sér í kólguna og syntu kná-
lega. Sigurvegairi var Stefán Ólafsson á
46,0 sek., 2. Benedikt Waage, 3. Guð-
14
SKINFAXI