Skinfaxi - 01.02.1976, Síða 16
LAGÐUR AF STAÐ TIL
ÓLYMPÍULEIKANNA
Hinn kunni frjálsíþróttamaður Hreinn
Halldórsson æfir af fullri alvöru fvrir ol-
ympíuleikana í Montreal í sumar. Frá
febrúarbvrjun hættir hann starfi sínu hjá
Strætisvögnum Rey'kjavíkur og ætlar að
helga sig æfingum af alefli fram að ol-
vmpíukeppninni.
Hér er um athyglisverða ákvörðun að
ræða hjá Hreini. Hann hefur sjálfur látið
svo um mælt að þetta sé nauðsynleg á-
kvörðun þar sem honum sé ætlað að
keppa við sér sterkari menn, og Hreinn
ætlar sér ekki að verða síðastur í keppn-
inni. Ákvörðun Hreins sýnir lí'ka að hann
gerir sér ljósa grein fyrir því hvað þarf
að gera til þess að eiga möguleika á að
Hreinn Halldórsson mundar kúluna. Ilann
hyggst styrkja og þróa kaststíl sinn með æf-
ingunum næstu mánuði.
halda til jafns við hálfgerða og algjöra
atvinnumenn sem skipa sér efst á heims-
afrekaskrána. En enginn hefur áður lagt
svo að sér fyrir íþrótt sína eins og Hreinn
gerir nú. Félagslegar og efniahagslegar
aðstæður íslenskra íþróttamanna eru svo
slæmar að framtak sem þetta er nær ó-
hugsandi, þó að einn íþróttamaður leggi
þetta á sig nú í þetta sinn af ákveðnu til-
efni. Allir sem fylgjast með íþróttum, vita
að helsta afreksfólk heims í öllum íþrótta-
greinum æfir við góðar aðstæður á hag-
stæðasta tíma dags alla daga vikunnar.
Minna dugar ekki til þess að komast í
fremstu röð. Slíkan aðbúnað er hægt að
skapa íþróttafólki án þess að um atvinnu-
mennsku sé að ræða. Islensk íþróttasam-
tök eru órafjarlægð frá því marki að
geta boðið afreksfólki okkar svipuð kjör,
og við höfum dregist aftur úr nær öllum
löndum Evrópu og Norður-Ameríku í
þessum efnum. Ákvörðun Hreins er því
merkilegt framtak í þá átt að reyna að
vinna upp það forskot sem aðrir hafa
náð fram yfir okkur, og þetta átak er
gert án opinbers stuðnings sem afreks-
menn á borð við Hrein njóta í ná-
grannailöndunum.
Hreinn bætti islandsmet sitt í kúlu-
varpi enn verulega sl. sumar og kastaði
19,46 m. Næstu mánuði, fram að olym-
16
SKINFAXI