Skinfaxi - 01.02.1976, Page 28
-7
FRÉTTIR ÚR
STARFINU
32. ársþing Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands var haldið á Fáskrúðs-
firði sunnudaginn 21. sept. sl. Formaður
sambandsins, Sigurjón Bjarnason setti
þingið og kynnti gesti þingsins, þá Þor-
varð Árnason, stjórnarmeðlim ÍSÍ,
Kristján Ingólfsson og Steinþór Magnús-
son fyrrverandi formann UÍA og Sigurð
Ó. Pálsson skálastjóra á Eiðum.
Að loknum kosningum fundarstjóra og
fundarritara voru lagðar fram skýrslur
stjórnar, framkvæmdastjóra, gjaldkera
og sérráða. í skýrslum stjórnar og fram-
kvæmdastjóra kom fram að mun meiri
umsvif hafa verið i rekstri sambandsins
undanfarið ár en oft áður. Ársreikningar
UÍA 1974 voru lagðir fram og sýndi rekst-
ursreikningur tap upp á kr. 574.916.40. en
heildarútgjöld voru kr. 1.011.368.80. Eftir-
talin sérráð skiluðu skýrslum til þings-
ins: handknattleiksráð, frjálsíþróttaráð,
sundráð, körfuknattleiksráð og knatt-
spyrnuráð. Auk þess lá frammi fjölrituð
afrekaskrá UÍA í frjálsum iþróttum frá
stofnun sambandsins og fjölrituð úrslit
frá punktamóti ungilnga, sem haldið var
á vegum skíðaráðs UÍA á Seyðisfirði 1. og
2. marz 1975. Þorvarður Árnason kvaddi
sér hljóðs og sagði frá því helsta sem
stjórn ÍSÍ væri að vinna að um þessar
mundir.
Er þingnefndir höfðu skilað störfum
og þingið hafði afgreitt tillögur þeirra,
voru tekin fyrir tvö sérmál þingsins,
knattspyrnuþjálfaramál á Austurlandi og
æskulýðsmál.
Framkvæmdastjóri sambandsins, Her-
mann Níelsson reifaði þjálfaramálið og
taldi að of miklu fé væri varið til þjálf-
unarkostnaðar, miðað við það sem í stað-
inn kæmi. Urðu um þetta nokkrar um-
ræður.
Sigurjón Bjarnason hélt framsögu um
æskulýðsmál. Samþykkti þingið að kjósa
nefnd til að undirbúa ráðstefnu um
æskulýðsmál í samvinnu við sveitarfélög
og feliri aðila.
Þá var kosin stjórn sambandsins og sér-
ráð. Formaður var endurkj örinn: Sigur-
jón Bjarnason Egilsstöðum. Aðrir í stjórn
voru kjörnir: Björn Ágústsson Egilsstöð-
um, Dóra Gunnarsdóttir Fáskrúðsfirði,
Elma Guðmundsdóttir Neskaupsstað, og
Gísli Blöndal Seyðisfirði.
í lok þingsins var samþykkt að halda
næsta ársþmg UÍA á Vopnafirði og skal
það standa i tvo daga.
28
SKINFAXI