Skinfaxi - 01.06.1976, Síða 3
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVII. árgangur — 3. hefti 1976.
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Eysteinn Þorvaldsson. — Út koma 6 hefti á ári.
LÁTUM EKKI FÁNANN FALLA
Árið 1940 endurvakti íþrótta- og æskulýðs-
frömuðurinn Sigurður Greipsson Landsmót
UMFÍ með myndarlegu móti á þeirra tíma
visu heima á föðurleifð sinni í Haukadal í
Biskupstungum. Til þess verks naut Sigurður
aðstoðar fjölmargra samtíðarforustumanna
innan ungmennafélagshreyfingarinnar og
sveitunga sinna, sem sumir hverjir eru í for-
ýstusveit félaganna enn i dag.
i þessu sambandi verður ekki komist hjá
Því að nefna eitt nafn, svo nátengt er það
Þessu endurvakningarstarfi og framþróun
landsmótanna frá þessum tíma, en það er
nafn Þorsteins Einarssonar, iþróttafulltrúa rík-
isins, sem öllum öðrum fremur hefur átt hlut
að máli, bæði er varðar uppbyggingu mann-
virkja og undirbúning og framkvæmd mót-
anna fram á þennan dag. Undir leiðsögn hans
°9 fyrir forgöngu fjölmargra forustumanna
angmennafélagshreyfingarinnar hefur okkur
tekist að hefja merki landsmótanna svo hátt,
að fáar íþrótta- og æskulýðshátíðir hérlendis
aá þar samjöfnuði.
Landsmótin eiga að vera hvati til starfs,
í víðtækustu merkingu þess orðs, um land allt
i félögunum og á heimaslóðum framkvæmda-
aðila mótanna. Þau örva markvissa uppbygg-
ingu hverskonar mannvirkja, sem þó voru í
sjónmáli þegar mótsstaðurinn var ákveðinn,
sú hefur og verið raunin og til þessa hefur
Þetta sjónarmið verið viðurkennt af öllum for-
ráðamönnum fjárveitingavalds.
Þennan ávöxt landsmótanna ber að rækta,
°9 það er leitt til þess að vita ef fjárveitinga-
vald sér þann veg helstan út úr ógöngum
erfiðs efnahags, að hefta þennan vöxt og
hætta að leggja hönd á plóg þar sem æskan
á í hlut. Eins og jafnan endranær mun æskan
sjá um sinn þátt, sem er hinn félags- og
Iþróttalegi undirbúningur landsmótanna, en
hann vex stöðugt að umfangi og glæsibrag.
16. Landsmóti UMFÍ hefur verið valinn
staður við Eyjafjörð, í hinum unga kaupstað
Dalvík, og á að fara þar fram árið 1978.
Blikur eru nú á lofti, og næsta óljóst
hvort aðstaða til landsmótshalds verði þar
fullgerð fyrir þennan tíma vegna tregðu á
fjárveitingum ríkisvaldsins til nauðsynlegra og
fyrirhugaðra mannvirkja þar á staðnum.
Það mun skapa umtalsverðan vanda í allri
framkvæmd og framþróun landsmótanna ef
keðjan verður slitin nú, því hér er um að
ræða margra ára skipulega uppbyggingu, sem
ná á til landsins alls áður en likur.
í tilefni þess að á þessu ári eru 70 ár liðin
frá því merki ungmennafélagshreyfingarinnar
var á loft hafið með stofnun Ungmenna-
félags Akureyrar og i tilefni þess að á næsta
ári eru 70 ár liðin frá því að forustumenn
sama félags höfðu forgöngu um stofnun Ung-
mennafélags íslands á Þingvelli við Öxará,
heiti ég á alla forráðamenn ríkisfjárveitinga
að færa heimabyggð frumkvöðlanna þá tiltölu-
lega litlu fjármuni sem hér um ræðir til þess
að unnt reynist að Ijúka nauðsynlegum fram-
kvæmdum á Dalvík fyrir 1978. Fórnarlund og
framlög heimamanna munu ekki eftir liggja.
Látum ekki fánann falla, sem höfðinginn í
Haukadal hóf á loft fyrir 36 árum. Allar beiðnir
okkar um fyrirgreiðslu I dag eru smámunir
samanborið við það sem Sigurður Greipsson
og félagar hans lögðu fram og framkvæmdu
fyrir landsmótið í Haukadal árið 1940.
H.Þ.
SKINFAXI
3