Skinfaxi - 01.06.1976, Page 4
I blaðinu cru
tvær greinar, er
fjalla um i-
þróttaferð ísi.
ungmennafé-
laga til Dan-
merkur í sumar
og keppni liðs
UMFÍ á lands-
móti dönsku
ungmennafé-
Iaganna.
í tilefni olympíuárs er i
blaðinu fjallað um liina
fornu olympíuleika.hnign-
un þeirra og endalok, og
um endurreisn þcirra.
FORSÍÐUMYNDIN er verðlaunamynd úr
samkeppni sem íþróttakennarafélag ís-
lands gekkst fyrir i tilefni olympiuleik-
anna í ár. Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir
frá Vestmannaeyjum hlaut 1. verðlaun
barna 9—12 ára, og er forsíðumyndin
Ijósmynd af fallegri litmynd hennar sem
minnir á olympíuhugsjónina, að efla frið-
samleg samskipti og samkeppni ólíkra
þjóða.
Nær 600 skólanemendur tóku þátt í
þessari myndasamkeppni þar af um 400
í Vestmannaeyjum. í aldursflokknum
12—14 ára hlaut Þóra B. Valsteinsdóttir
úr Kvennaskólanum 1. verðlaun.
Þess má geta að svipuð samkeppni var
háð meðal skólabarna í Kanada þar sem
leikarnir voru háðir. Myndir úr þeirri
keppni voru síðan notaðar til skreytinga
í öllum herbergjum i olympíuþorpinu í
Montréal, og var mikil prýði að þeim.
Verðlaunamyndir islensku barnanna
standast fyllilega samanburð við falleg-
ustu myndirnar sem prýddu olympíu-
þorpið.
Krakkarnir sem verð-
laun hlutu í mynda-
samkeppni iþróttakcnn-
arafélagsins. Frá vinstri:
Guðbjörg Ósk Friðriks-
dóttir, I’óra B. Valsteins-
dóttir, Guðlaug Sigurð-
ardóttir, Guðmundur
Bender og Jón Garðar
Henrýsson. Á myndina
vantar einn verðlauna-
hafann, Jón Marinósson.
4
SKINFAXI