Skinfaxi - 01.06.1976, Side 5
Ungmennafélögin á Vestfjörðum:
LEGGJA ÁHERSLU Á
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Jón Guðjónsson form. HVÍ.
Héraðssamband Vestur-ísfirðinga
hefur gengist fyrir frj álsíþróttamóti
fyrir börn og unglinga á aldrinum
10—16 ára, og svo er enn í ár. Keppt
er i tveimur aldurshópum og fær stig-
hæsta félagið verðlaunagrip að sigur-
launum.
Þegar Skinfaxi náði tali af Jóni
Guðjónssyni formanni HVÍ í lok júní-
mánaðar, var þessi keppni nýhafin á
Þessu sumri. Keppt er á fjórum stöð-
um: á Núpi, Þingeyri, Plateyri og
Suðureyri. Félögin á hinum ýmsu
stöðum sjá um framkvæmd keppninn-
ar. Þetta hefur gefist vel, og þátttaka
hefur verið mjög góð.
— Hugmyndin að baki þessu sér-
kennilega mótshaldi er tvíþætt, sagði
Jón. — í fyrsta lagi eru byggðirnar
svo dreifðar í héraðinu, að það yrði
óbærilegur kostnaður að smala öllum
á einn stað. í öðru lagi komast sam-
tökin í betri tengsl við fjölskyldur
krakkanna þegar mótin eru í þeirra
heimabyggð; allir geta fylgst með og
örvað áhugann.
Um áætlað íþrótta- og félagsstarf
vesturísfirsku ungmennafélaganna i
sumar fræddi Jón okkur skilmerkilega,
°g skal hér getið þess helsta:
Hinn 12. júlí hefst sumarbúðanám-
skeið HVÍ á Núpi í Dýrafirði. Það
stendur í lo daga. Áhersla verður lögð
á sund, frjálsar íþróttir og ýmsa leiki
og félagsslegt starf. Aðalleiðbeinandi
verður Kristján Valdimarsson og um-
sjónarmaður ingólfur Björnsson.
Hið árlega héraðsmót HVÍ í frjáls-
um íþróttum fer fram dagana 10.—11.
júlí og verður það einnig á Núpi. HVÍ
hyggur á þátttöku í tveimur frjáls-
íþróttamótum utanhéraðs í sumar:
Vesturlandsmótinu á Akranesi og í 2.
deild bikarkeppni FRÍ. — Það má því
segja að við leggjum talsverða áherslu
á frjálsar íþróttir núna, sagði Jón. Það
er heldur ekki ófyrirsynju, við náðum
6. sæti á Landsmótinu í fyrra í stiga-
keppni frjálsra íþrótta og sendum þó
aðeins 15 manns á mótið. Þetta var
mikil uppörvun fyrir okkur, og við
vildum gjarnan sækja betur fram á
þessum vettvangi.
Aðspurður um knattspyrnuna sagði
Jón að áhugi fyrir henni væri alltaf
talsvert mikill í þorpunum.. Þeir hefðu
hins vegar gefist upp á þátttöku í 3.
deild KSÍ. Sambandið við KSÍ hefði
ekki verið gott, dómaramálin í ólestri
og lítill skilningur á vandamálum
SKINFAXI
5