Skinfaxi - 01.06.1976, Page 9
voru tengdir ákveönum byggðarlögum
hér á landi.
Hápunktur sýningarinnar og loka-
atriði var hinn skemmtilegi íslenski
vefaradans, sem flokkurinn sýndi af
einstakri innlifun og léttleika. Söng-
stjóri og kynnir var Sigurður Guð-
mundsson, skólastjóri.
Frj álsíþróttafólk okkar tók nú í
þriðja sinn þátt í frjálsíþróttakeppni
Landsmóts DDGU eins og áður getur,
en þar er um stigakeppni að ræða, og
tók UMFÍ þátt í henni eins og eitt
fylki eða amt i Danmörku. Að þessu
sinni voru lið UMFÍ tvö, a- og b-lið.
B-liðið var að mestu skipað ungu
íþróttafólki sem dvalið hafði í æfinga-
búðum í (Fuglsöcentret) um það bil
þrjár vikur fyrir landsmótið og æft
þar undir leiðsögn Olö Schöler. Þó
varö b-liðið að sjá af nokkrum sínum
bestu yfir í a-liðið þegar keppnin
hófst. Úrslit stigakeppninnar varð sú,
að a-lið karla frá UMFÍ lenti i fyrsta
sæti, og a-lið kvenna í öðru sæti.
Gifurlegur hiti mótsdagana dró veru-
lega úr afrekum íþróttafólks okk-
ar, þó var sem jafnan áður um mjög
skemmtilega og jafna keppni að ræða
í flestum greinum. íslensku áhorfend-
urnir settu sem jafnan áður skemmti-
legan svip á mótið með samstilltum
hvatningarópum og einlægri gleði yfir
unnum sigrum.
Frábær aðstaöa og móttökur
Móttökur allar af hálfu DDGU og
framkvæmdaaðila mótsins voru til
mikillar fyrirmyndar. Boðið var upp
á kynningar- og skemmtiferðir dagana
fyrir mót, sem margir þáðu og höfðu
ánægja af.
Búið var í myndarlegum og vel-
útbúnum skólum í nágrenni við móts-
svæðin og þar snæddur morgunmatur.
Hádegismatur var síðan framborinn
í stórum veitingatjöldum á mótsstað.
Hin glæsilegu íþróttamannvirki í
Esbjerg vöktu óskipta athygli okkar
íslendingana, sömuleiðis borgin sjálf,
og siðast en ekki síst verða okkur
minnisstæðir hinir sólríku sumardag-
ar sem við dvöldum í Danmörku í sum-
ar, enda hver stund notuð til þess að
baka kroppinn og liggj a í sólinni. Einn
daginn komst hitinn í 40 stig í skugg-
anum, og var það á tennisvelli þar sem
keppni fór fram.
Ég vil að lokum þakka öllum is-
lensku þátttakendunum í Landsmót-
inu i Esbjerg glæsilega framgöngu í
hvívetna og skemmtilega og ánægju-
lega ferð.
Minnumst öll þessara góðu daga,
þegar að okkur kemur að endurgjalda
móttökurnar hér heima.
H.Þ.
SKINFAXI
9