Skinfaxi - 01.06.1976, Qupperneq 11
Tóku þátt í
fjölmennasta íþróttamóti heims
Valdimar Guðjónsson
Á hvítasunnudag, 6. júní s.l.,
hélt 38 manna hópur frjáls-
íþróttafólks til æfinga og
keppni í danmörku á vegum Hér-
aðssambandsins Skarphéðins. —
Þetta hlýtur að teljast merkilegt
framtak og mikils virði fyrir hið
unga fólk sem þarna fékk tæki-
færi til að æfa við bestu aðstæð-
ur. Slíkar ferðir og dvöl í æfinga-
búðum hefur líka mikilsverða
félagslega þýðing ufyrir þetta
unga fólk. Einn hinna ungu
skarphéðinsfélaga, sem þátt tók
í ferðinni, skrifaði eftirfarandi
frásögn um þessa ferð fyrir
Skinfaxa.
Það var í október á sl. ári sem undir-
búningur fyrir Danmerkurferðina
hófst fyrir alvöru, ætlunin var að
dveljast um tveggja og hálfs vikna
skeið við æfingar í aðalæfingabúðum
dönsku ungmennafélaganna nánar til-
tekið í Fuglsöcentret loks gafst svo
hópnum kostur á að keppa á landsmóti
dönsku ungmennafélaganna i Esbjerg
24.—27. júni. Okkur var gert að skila
æfingaskýrslum til nokkurra forystu-
manna í frjálsíþróttanefnd HSK
mánaðarlega, en æfingaskylda var
þrisvar sinnum í viku minnst. Áhug-
inn var mikill hjá hópnum og var æft
mjög vel almennt allan veturinn.
Tvisvar kom hópurinn allur saman og
var þá æft sameiginlega siðla dags,
kvöldmatur á eftir og loks kvöldvaka.
Var þá rætt um undirbúninginn, æf-
ingarnar, dansað o.m.fl. Þessar sam-
æfingar eru mjög vinsælar hjá okkur
og þrýsti þetta hópnum mjög mikið
saman. Tel ég að þær ættu að vera á
hverjum vetri, hvort sem verið er að
æfa fyrir danmerkurferð eða venju-
legt keppnistímabil. Það leið að vori
og við höfðúm nóg að snúast bæði við
að æfa og einnig að safna i sameigin-
legan ferðasjóð en undirbúnings-
nefndin stefndi að því að geta borgað
fargjaldið fyrir allan hópinn út og
heim aftur. Við héldum hlutaveltu,
bingó, kökubasara o.fl.
Loks leið að burtfarardegi og kom
þá í ljós að nokkur sæti voru laus, og
bauð þá undirbúningsnefndin nokkr-
SKINFAXI
11