Skinfaxi - 01.06.1976, Page 13
um gestum úr öðrum landshlutum og
komust færri að en vildu. Lagt var af
stað 6. júní og skyldi dvalist til 27.
júní. Komum við til Fuglsö að kvöldi
sama dags eftir að hafa gengið um
stræti kóngsins Kaupmannahafnar
og flogið frá Khöfn til Tistrup-flug-
vallar og farið síðan með rútu til
Fuglsö. Þar hittum við fyrir forstöðu-
mann búðanna og okkar gamalkunna
þjálfara Ole Schöler en hann þjálfaði
m.a. HSK-liðið fyrir landsmótið á
Akranesi ’75 og hefur reynst HSK
mjög innan handar bæði hvað varðar
þjálfun og einnig sá hann alveg um
að fá pláss fyrir hópinn í þessum fjöl-
sóttu æfingabúðum.
Nú byrjuðu æfingar af fullum krafti
og var æft tvisvar sinnum á degi
hverjum. Fæði og húsnæði var eins
og maður getur frekast óskað sér, að-
staðan var mjög góð þarna fyrir svo
að segja allar tegundar íþrótta, t.d.
tveir stórir íþróttasalir. Meðan við
dvöldum þarna komu m.a. knatt-
spymumenn, badminton-fólk, hand-
boltafólk o.fl. Ég segi fólk því þarna
kom fólk af öllum aldri (einnig krakk-
ar) og dvaldi við æfingar. Við héldum
nokkur æfingamót og ekki stóð á því
að margir fóru að bæta sig og sumir
verulega. Við fengum að halda eitt
mót á aðalleikvanginum í Árósum en
þar er fullkomin aðstaða, tartan-
brautir o.s.frv. Tíminn leið allt of
fljótt og nú fór ævintýrið að enda og
24. júní var lagt af stað í rútu á lands-
mótið í Esbjerg, en flestir úr okkar
hópi áttu að keppa þar, nokkrir voru
í UMFÍ-landsliðinu og svo kepptu
margir fyrir HSK en við fengum að
íslenskir keppendur og áhorfendur í sól og
sumaryl á áhorfendapöllum leikvangsins í
Esbjerg meðan landsmót DDGU fór þar fram.
senda lið úr okkar hópi til keppni og
að sjálfsögðu sá Ole um það fyrir
okkur. Við sem fengum að keppa
þarna gleymum því aldrei, og flestir
sem kepptu þarna strengdu þess heit
að vera með næst og gera þá enn bet-
ur. Já ég sagði þarna að við sem
kepptum mundum aldrei gleyma því.
Það er nú fyrst og fremst vegna þess
að það er hreint ekki svo lítið að fá
að keppa á „Verdens störste idræts-
tævne“ stærsta íþróttamóti heims,
en keppendur á landsmótinu voru
alls um 23 þúsund, og til samanburðar
má geta þess að keppendur á Olympíu-
leikunum hafa oftast verið í kringum
4500 hin síðasri ár. Þessi mikli fjöldi
lá held ég aðallega í því hve mikið
var um stóra fimleikaflokka sem bók-
staflega fylltu leikvanginn með sýn-
SKINFAXI
13