Skinfaxi - 01.06.1976, Síða 14
í Fug'Isö er góð baðströnd, og margir brugðu
sér í sjóinn til að kæla sig því að oft var
hitinn mikill.
ingum sínum. Keppt var í frjálsum
íþróttum á velli alveg við hliðina á
aðalleikvangnum. Ég ætla ekki að
rekja árangra okkar né UMFÍ-hópsins
hér, en afrekin voru flest ágæt, t. d.
sigraði UMFÍ í stigakeppni í karla-
greinum. Leið nú að lokum þessarar
ferðar og sá víst enginn eftir að hafa
farið. Til gamans má skjóta hér inn
einu sem einn UMFÍ-mannanna sagði
í keppninni: „Danirnir eru bókstaf-
lega hvítir (á hörund) miðað við þessa
HSK-menn“ en það má geta þess hér
að við lentum einmitt í hitabylgju
sem hefur herjað á mestalla Evrópu
í sumar, og var oftast verið í sólbaði
milli æfinga eða fólk skellti sér í sjó-
inn en ágæt baðströnd er í Fuglsö.
Ég er þess alveg fullviss að útkoman
úr þessari ferð, bæði fyrir HSK og
hópinn sem fór út, er mjög góð þegar
á heildina er litið, þarna kom eftir
ferðina samhentur ungur hópur sem
á framtíðina fyrir sér. Ekki má gleyma
að minnast á gestina en þeir voru
1 frá ÍR, 1 frá HSH, 1 frá KA og 7 frá
HSÞ svo alls vorum við 39. Allt voru
og eru þetta fínir krakkar og að sjálf-
sögðu sköpuðust góð kynni milli okkar
og þeirra og var mjög gaman að kynn-
ast þarna krökkum úr flestum lands-
hornum.
Ég held að fleiri félög innan UMFÍ
ættu að stefna að svona ferðum með
tilliti til þess hvernig þessi ferð heppn-
aðist og ekki síst þar sem UMFÍ hefur
gert mjög góða samninga við Ferða-
miðstöðina um helmings afslátt af
fargjaldi fyrir svona ferðir.
Að lokum vil ég koma hér fram
þökkum til allra þeirra sem gerðu
þessa ferð mögulega og lögðu í það
mikla vinnu og gerðu það kleift að
hafa kostnaðinn svona lítinn, en við
losnuðum alveg við að borga fargjald
vegna þess hve vel var að þessum mál-
um unnið.
Valdimar Guðjónsson.
14
SKINFAXI