Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1977, Qupperneq 4

Skinfaxi - 01.02.1977, Qupperneq 4
Forsíðan Eins og sjá má hefur Skinfaxi fengið nýtt andlit. Útfærsla forsiðunnar er unnin af hinum kunna teiknara Ragnari Lár eftir hugmynd Gunnars Kristj ánssonar. Ragnar sá einnig um uppsetningu forsíðunnar þegar breytt var síðast um útlit á skinfaxa 1969. Fréttamannakerfi Skinfaxi hyggst koma sér upp kerfi fréttamanna sem byggjast skal á for- mönnum og framkvæmdastjórum að- ildarsambanda og félaga innan UMFÍ. Bréf hefur verið sent öllum formönn- um þessara félaga og þeir beðnir um fréttir. Vísnaþáttur Að yrkja er íþrótt, stendur einhvers staðar. Það væri því ekki úr vegi að helga þessa fornu íþrótt eina af síð- um Skinfaxa. Heiti ég því á þá hag- yrðinga sem þetta lesa eða fregna, að senda Skinfaxa eithvað af afrakstri íþróttar sinnar. Hækkun áskriftargjalds Skinfaxi vekur athygli lesenda á því að áskriftargj ald hefur verið hækkað í kr. 1000,00. Þá hefur komið til tals að breyta innheimtufyrirkomulagi þann- ig að sendir verði út giróseðlar með 2. eða 3. tölublaði hvers árgangs. Myndin að ofan er birt í tilefni skákeinvigis þeirra Horts og Spaskíss sem fram fer i Reykjavík þessa dagana. f því sambandi má minna á að skákþing UMFÍ 1977 fer senn að hefjast. 4 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.