Skinfaxi - 01.02.1977, Blaðsíða 11
Frá fréttamönnum
Skinfaxa
Jón Guðjónsson.
PRÉTTIR FRÁ H.V.Í.
Jón Guðjónsson, form. HVÍ hringdi
og sagði frá skíðalyftu sem sett hefði
verið upp á Þingeyri. Kvað hann þaö
vera einstaklingsframtak aðflutts Ak-
ureyrings. Útbúnaður lyftunar mun
vera svipaður og verið hefur í Jóseps-
öal til skamms tíma, þ. e. dráttarvél-
arafl er notað til að knýja lyftuna.
Þá kvað Jón nokkurt lífsmark tekið
að færast í íþróttafélagið Stefni á
Súgandafirði en starfsemi þess hafði
legið niðri um nokkurt skeið.
Einnig greindi hann frá því að árs-
þing HVÍ yrði haldið á Flateyri 8.
apríl n. k. Sagði Jón það vona sína
að stjórnarmenn UMFÍ og ÍSÍ sæju
sér fært að heimsækja þingið.
Að lokum sagði Jón að þeir hjá HVÍ
væru búnir að leysa þjálfaramál sín
fyrir komandi sumar. Hilmar Pálsson,
sem er Vestfirðingur og dvelur nú við
nám i íþróttakennaraskóla íslands,
hefði boðið fram starfskrafta sína og
hefðu þeir að sjálfsögðu verið þegnir.
Á hraðbergi
Eftir að Jón hafði verið fyrstur að
bregðast við fréttamannakerfinu, varð
þessi fyrripartur til:
Fréttirnar var fyrstur með,
fluttar gegnum síma.
og Sigurður Geirdal botnaði:
Henti á lofti „Heyrt og séð“
og hringdi á réttum tíma.
SKINFAXI
11