Skinfaxi - 01.02.1977, Síða 17
Sigurður Skarphéðinsson, þingforseti og Páll
Aðalsteinsson, form. UMSK.
óneitanlega bitnað á framkvæmdum
sambandsins. Enginn framkvæmda-
stjóri hefði starfað á vegum félagsins
sl. ár, en reynt hefði þó verið að halda
skrifstofunni gangandi. Páll gat þess
í því sambandi að skrifstofa sam-
bandsins, sem verið hefði að Klappar-
stíg 16, hefði nú verið flutt að Álfhóls-
vegi 32 í Kópavogi. Kvaðst Páll mundu
sakna þeirra tengsla sem þar hefðu
skapast, við hina ýmsu aðila hreyf-
ingarinnar af landsbyggðinni sem
komið hefðu á skrifstofu UMFÍ til að
reka erindi sín þar.
Umræður um skýrslu stjórnar urðu
litlar og kannski minni en búast hefði
mátt viö, þar sem ýmsar raddir hafa
verið uppi um framtíð og tilveru
UMSK.
í matarhléi var fulltrúum og gestum
boðið upp á að skoða íþróttamann-
virki þeirra Mosfellssveitunga sem
risið hefur upp á örskömmum tírna,
mun skemmri en venjan er þegar
jafnstór manvirki eiga í hlut. Oddviti
Mosfellssveitar, Jón B. Guðmundsson,
rakti byggingarsögu hússins. Við
byggingu hússins sem teiknað er af
Gísla Halldórssyni hefur einfaldleik-
inn setið í fyrirrúmi og er áætlað að
kostnaður við það verði kominn í ca.
85 milljónir þegar það verður tekið
í notkun síðari hluta vetrar eða í vor.
Það mun ekki þykja há upphæð þegar
jafnstór íþróttamannvirki eiga í hlut.
Stærð hússins er 20x40 m.
Frá íþróttahúsinu hverfum við að
þeim þætti í starfi UMSK sem er allr-
ar athygli verður, en það er félags-
málafræðsla í skólum á sambands-
svæði UMSK. Auk þess að hafa haldið
Halldór Gíslason, formaSur Umf. Drengs, í
ræðustól.
SKINFAXI
17