Skinfaxi - 01.02.1977, Blaðsíða 23
r-
'7
FRÉTTIR ÚR
STARFINU
Héraðsþing
USAH
1976
framkvæmdastjóri undanfarin tvö
sumur, er það Pétur Eysteinsson úr
Kópavogi. Á þinginu voru samþykktar
ýmsar tillögur varðandi starfið fram-
undan og má þar nefna t. d. að ákveð-
ið var að USAH reki ungmennabúðir
næsta sumar. Formaður USAH er
Magnús Ólafsson, Sveinsstöðum.
S. G.
Héraðsþing USAH var haldið að
Húnavöllum laugardaginn 19. febrúar
sl. Af hálfu UMFÍ sóttu þingið Haf-
steinn Þorvaldsson, Sigurður Geirdal
og Guðjón Ingimundarson.
í heild virðist árið 1976 hafa verið
gott ár hjá USAH og var bjartsýni
ríkjandi um starfið framundan, enda
var kjörorð þingsins: ,,Nú er tími til
stórra átaka“. — USAH gengst ár-
lega fyrir svokallaðri Húnavöku sem
er mikið félagslegt átak og helsti
menningar- og félagsviðburður ársins
hjá Húnvetningum. Þá gefur USAH
árlega út ritið Húnavöku sem er rúm-
lega 200 síðna bók hverju sinni og
flytur hún hinn merkasta fróðleik og
framtak þetta USAH til hins mesta
sóma. Fjárhagur USAH er nokkuð
góður og hefur verið það að undan-
förnu. Hjá USAH hefur starfað sem
Héraðsþing
HSK
1976
Héraðssambandið Skarphéðinn hélt
héraðsþing sitt á Hellu dagana 26.—
27. febrúar 1977. Fulltrúar á þinginu
voru 67 frá 23 félögum. Af hálfu
UMFÍ sóttu þingið þeir Sigurður Geir-
dal og Hafsteinn Þorvaldsson.
Á þinginu var allmikið fjallað um
*
SKINFAXI
23