Skinfaxi - 01.12.1977, Síða 3
Ritstjóri og ábyrgSarm.: Gunnar Kristjánsson. — Út koma 6 hefti á ári.
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXVIII. árgangur — 6. hefti 1977
Við verðum að leggja meira að mörkum
SíSasta þing FRÍ er eitt af þeim bestu er ég
hef setið hvað varðar þingsköp, en það er ekki
nóg. Það þarf fólk tii að aðrir þættir heppnist
eins vel, s. s. skoðanaskipti og umræður.
Ég tel það alvarlegt mál hve fáir mættu úr
dreifbýlinu og reyndar öllu landinu, þegar frá
Snæfellsnesi og allar götur vestur, norður og
austur um land að félagssvæði Skarphéðins,
mættu aðeins fjórir fulltrúar.
Á komandi sumri er Landsmót UMFÍ og
ýmis mót í frjálsum íþróttum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu og víðar. Mótaskrá FRÍ er það
þétt uppsett að það má heita list að koma á
móti í heimabyggð eða senda íþróttafólk á
öllum aldri á landsmót eð þau meistarmót sem
haldin eru á þessum stutta tíma, sem er til
móta (júlí og ágúst) hjá okkur á snjóþyngri
svæðum landsins.
Ef við ætlum okkur að styðja það fólk sem
við erum að þjálfa, sumt fyrir mikinn pening,
á aldrinum 11—20 ára, þá verðum vlð að
leggja meira af mörkum en gert er. Frum-
skilyrðið er að mæta á þingum til að ræða
málin, með þann mannskap sem við höfum rétt
á, en vera ekki að senda tillögur sem tillögu-
smiðir geta ekki flutt mál sitt fyrir. Hvað þá að
sitja heima óánægðir, tuðrandi um að ekkert
sé gert, en gleyma hlutverki okkar I þessum
málum.
Skólafólk á að mæta fyrir hina og þessa.
En sem betur fer hefur það áhuga á að ná
árangri i sínum skólum og notar helgar eins
og þessa síðustu til að lesa undir próf. Minn
dómur er hispurslaus. Það er ófyrirgefanlegt
hugsunarleysi og trassaskapur forráðamanna
hinna ýmsu sambanda að mæta ekki á þing-
inu eða senda einhverja í sinn stað.
Stjórn FRÍ þarf einnig að vinna miklu meira
að undirbúningi og auglýsa þingið betur en
verið hefur. íþróttafréttaritarar blaða og sjón-
varps þurfa að taka meira tillit til innlendra
afreka í frjálsum íþróttum en þeir gera. Meðan
þeir birta ekki þær upplýsingar sem þeim eru
sendar er ekki hægt að búast við öðru en
neikvæðum áhrifum. Ég býst við að það sé
ekki ætlun þeirra að drepa niður frjálsar f-
þróttir I landinu, en það er uggvænleg þróun
þegr helst ekki má nefna þannig mót út um
land og vart í Reykjavík nema þau séu haldin
af ákveðnu íþróttafélagi.
íþróttafréttaritari Ríkisútvarpsins, Hermann
Gunnarsson, er hér algjörlega undanþeginn,
því það virðist hægt að trúa honum fyrir efni.
Hann skilar því og mjög greinilega I þáttum
sínum og þarf ekki að ganga neitt á eftir
honum.
Við eigum afreksfólk í frjálsum íþróttum víða
um land en það fólk sem bíður lægra hlut
má ekki gleymast, því æfingin skapar meist-
arann, og fjöldi móta gefur íþróttafólkinu þor
og áræði, heima og heiman.
Jón Guðjónsson, form. HVÍ.
SKINFAXI
3