Skinfaxi - 01.12.1977, Blaðsíða 6
Landsmótsnefnd á fundi, frá vlnstri: Hafsteinn Þorvaldsson, UMFÍ, Gísii Magnússon, Hjörtur
Jóhannesson og Jóhannes Sigmundsson, formaður nefndarinnar.
ekki miðað svo mjög áfram í sumar
og haust. Hins vegar verður nú að
loknu útboði settur fullur kraftur á
byggingu íþróttahússins, og að vori
verður gengið frá ýmsu utanhúss og
einmitt með tilliti til þessa fór Sel-
fosshreppur fram á, að landsmótið
yrði fært til síðari hluta júlímán-
aðar. Á það sjónarmið féllst lands-
mótsnefnd.
— Hvað með fjármagnshliðina?
— Fj ármagn mun vera tryggt til að
ljúka nauðsynlegustu framkvæmdum.
Hins vegar hefur Héraðssambandið
Skarphéðinn ekki úr miklu að spila
um þessar mundir.
— Hvert er þitt álit á því að halda
landsmót í þéttbýli?
— Það fylgja því bæði kostir og
gallar að halda landsmót í þéttbýli.
Gallarnir eru helstir þeir, að mótið
verður ekki eins mikið út af fyrir sig,
ekki eins og ein heild í ys. og þys bæj-
arlífs. Ég tel þó, að þessa muni ekki
gæta svo mjög á Selfossi, því íþrótta-
mannvirkin eru öll á sama svæðinu.
Landsmótin eru orðin svo umfangs-
mikil, að tæpast er um það að ræða
lengur að halda þau utan þéttbýlis.
— Er búið að ákveða eitthvað með
dagskrá mótsins, þ.e.a.s. fyrir utan
tímasetningu keppni?
— Ýmislegt hefur verið rætt varð-
andi dagskrá, en ég tel ekki tímabært
að greina frá því að svo stöddu. Hins
vegar vil ég geta þess að aðstaða til
ýmiss konar sýninga er góð á Selfossi.
Hefur t.d. verið ákveðin sýning í-
þróttafrímerkja, hin fyrsta af því tagi
hérlendis og sýning bóka er snerta
íþróttir.
— Hvernig gengur undankeppni
þeirra greina sem keppa verður í fyrir
Hvaða bölvuð vitleysa er þetta í þér, Sigurður,
mætti ef til vill lesa út úr svip Hafsteins. —
Myndirnar eru teknar á fundi landsmótsnefnd-
ar í Skarphéðinssal.
6
SKINFAXI