Skinfaxi - 01.12.1977, Qupperneq 8
að allstór hópur frjálslþróttafólks
verður sendur til keppni. Knatt-
spyrnulið UÍA hefur unnið sér rétt til
þátttöku. Aftur á móti eru handknatt-
leiksstúlkurnar úr leik.
Aðrar íþróttir, sem UÍA hefur hug
á að senda lið í eru: glíma, sund, blak,
körfubolti og skák. Þá verður lögð
áhersla á að austfirskur almenningur
fjölmenni á landsmótið.
Afrek haustsins eru fá og láta litið
yfir sér. Haldið var félagsmálanám-
skeið hjá Neista á Djúpavogi i október.
Samin hafa verið drög að mótaskrá
fyrir næsta starfsár. Reynt hefur ver-
ið að vekja umræðu um félags- og
uppeldismál með sendingu bréfs til
allra klúbba og félaga á Austurlandi,
þar sem spurt er nokkurra brenn-
andi spurninga.
í undirbúningi er útgáfa ársrits upp
á 100 síður. í því birtist yfirlit yfir
störf sambandsins á liðnu starfsári.
Útgáfan er fjármögnuð með auglýs-
ingum, og er ritinu dreift á hvert
heimili á sambandssvæðinu.
Margt fleira er á döfinni, nýjar fjár-
öflunarleiðir, hugmyndir um trimm-
keppni milli staða, áframhaldandi
gönguleiðakortaútgáfu og þar fram
eftir götunum.
Verður nánar komið inn á þessi
verkefni í næsta fréttabréfi.
Sigurjón Bjarnason
(framkv.stj.)
Fréttir að vestan
Jón Guðjónsson, form. HVÍ, er einn
þeirra manna sem ætíð er reiðubúinn
til að setjast niður og ræða sin hjart-
ansmál og það fer ekki milli mála
hvaða mál það eru sem honum eru
hjartfólgnust, það kemur í ljós þegar
rætt er við hann. Við ræðum hér við
hann um þessi áhugamál, sem eru
Félagsstörf hjá HVÍ.
Jón var að koma af FRÍ-þingi þegar
Skinfaxi hitti hann að máli og var
ekki alltof hress yfir mótaskrá þeirri
sem þar var samþykkt, vegna þess,
hve miklum erfiðleikum það yrði
bundið fyrir þá hjá HVÍ að koma nið-
ur mótum innan héraðs, því að sjálf-
sögðu vildu þeir gefa sínu fólki kost á
að taka þátt i keppni utan héraðs. í
sambandi við ferðalög utan héraðs,
sem að mestu væru flugleiðis, vildi
Jón taka fram að hann væri ánægður
með að njóta þeirra samninga sem
Flugfélag íslands og FRÍ hefðu gert
sín á milli, þar sem um væri að ræða
33% afslátt af almennum fargjöldum,
sem munaði um þegar um hópa væri
að ræða. Jóni fannst það sjálfsagt að
önnur fyrirtæki sem önnuðust far-
þegaflutning gæfu kost á slíkum
samningum.
Varðandi þátttöku í Landsmóti
UMFÍ á Selfossi á næsta ári hvað Jón
það stefnu þeirra hjá HVÍ að gefa
þremur bestu í hverri grein kost á þvi
að keppa á landsmótinu þó búast
mætti við erfiðleikum vegna þess hve
seint það verður (21.—23. júlí), en þá
væri heyskapur í algleymingi. Þeir
8
SKINFAXI