Skinfaxi - 01.12.1977, Page 15
í undralandi, f. v.:
Arni, Valdimar túlkur,
Agústa, Sigurjón, Snorri,
Sverrir, HörSur.
stofnaðar 1925 undir kjörorðinu „allt
það besta fyrir börnin“. Þær hafa
starfað nær samfleytt síðan, að und-
anskildu hléi sem varð á starfseminni
í síðari heimsstyrjöldinni. Þessar búð-
ir munu vera með stærstu ungmenna-
búðum í heimi. Strandlengjan sem
þær standa við er um 7 km. og er nátt-
úrufegurð mjög mikil. í búðum þessum
dvöldu þennan tíma um 4.300 börn og
unglingar frá 103 þjóðlöndum. Fyrstu
vikuna var haldið alþjóðlegt friðar-
mót undir kjörorðinu „may there al-
ways be sunshine“. Þar voru m. a.
skemmtanir sem þátttakendur sáu um
og líka söngur, dans o. fl„ en auk þess
störfuðu börnin í ýmsum klúbbum. Sú
starfsemi var aðallega ætluð til þess
að börnin kynntust hvert öðru. Sam-
hliða þessu fór svo fram friðarráð-
stefna fyrir fararstjóra sem Pétur sat.
AÖ friðarvikunni lokinni var engin
föst dagskrá í búðunum en mikið var
Moska á kauoatorginu.
SKINFAXI
15