Skinfaxi - 01.12.1977, Page 18
í réttu umhverfi,
á kaffistofunni.
nokkuð yfir fermingu þá fóru önnur
sjónarmið að grípa inn í. Ég undi mér
vel eins og ég sagði áðan og ég vildi
vera þarna áfram en ég þurfti að fara
þangað sem ég aflaði meiri tekna, í
síldina á Siglufirði sem sagt, vegna
fyrirhugaðrar skólagöngu.
Ég fer síðan suður í Reykholt i
heimavistarskólann þar og er þar í tvo
vetur. Raunar má segja að sú för hafi
verið nokkuð afdrifarík því að ég kom
ekki norður aftur fyrr en mörgum ár-
um seinna. Ég fékk vinnu í Reykjavík
á milli vetranna í Reykholti, og síðan
þegar ég hafði lokið þar námi þá var
ég þar í eitt og hálft ár að safna fyrir
framhaldsnámi og fór svo í Samvinnu-
skólann og útskrifaðist þaðan vorið
1959. Þessi ár sem ég var í skóla, tók
ég alltaf þátt í íþróttum. Ég hafði
kynnst bæði knattspyrnu og skíðum í
Fljótum, og síðan þegar ég kem í
Reykholtsskóla, þá var mikið íþrótta-
líf þar og þar kynntist ég fyrst frjáls-
um íþróttum að einhverju gagni og
sama má segja um sundið. Ég æfði
alltaf eitthvað en að vísu án tilsagnar
og keppti í þessum greinum svona af
lítilli getu að vísu, en var þessu tengd-
ur, alveg frá fimmtán ára aldri. í
Reykholti og Bifröst var ég með ein-
um ágætum ungmennafélaga, Pálma
Gíslasyni sem er fyrrverandi stjórnar-
maður í UMFÍ, hann var sjálfur frjáls-
íþróttamaður og tengdur ungmenna-
félögunum og í þeim náttúrlega.
Sennilega hefur það verið fyrir kunn-
ingsskap við hann að ég hóf eigin-
legan keppnisferil minn sem keppandi
fyrir USAH. Þá var ég að vinna á
Hvammstanga eftir að ég hafði lokið
prófi í Samvinnuskólanum og sótti
æfingar norður á Blönduós, keppti síð-
an á Landsmóti þá fyrst 1961. USAH
var öflugt á þessum árum og ég kynnt-
ist þarna og lærði mikið af ágætist
frjálsíþróttafólki og sem sagt, náði
mér á strik. Þessu hélt siðan áfram
þegar ég kom suður. Að vísu truflaðist
þetta af því að ég var tvisvar erlendis.
í Þýskalandi fyrst eitt sumar og síðan
ár í Danmörku, en á báðum þessum
stöðum hélt ég áfram svona að gutla
við æfingar, en raunveruleg félags-
störf eða störf að forystumálum í ung-
mennafélögum hefjast ekki fyrr en ég
kem í Kópavoginn og er kosinn for-
maður Breiðabliks. Fyrst hafði ég nú
verið í stjórn og formaður frjáls-
íþróttadeildar félagsins, en síðan for-
maður ’65. Nú, eins og menn kannski
muna var árið ’65 mikið ár hjá ung-
mennafélögunum, þá var haldið
Landsmót á Laugarvatni, það stærsta
sem haldið hefur verið til þessa dags,
en það hefur áhrif að sjá slíkar sam-
komur og taka þátt í þeim, ég held að
enginn sem er virkur þátttakandi í
18
SKINFAXI