Skinfaxi - 01.02.1979, Qupperneq 14
Brynjólfur Hilmarsson og Lúðvík Björgvinsson. Sýnið
dugnað við æfingar og varist að verða meðalmennsk-
unni að bráð!
Karl West
UMSK
Stefán
Hallgrímsson
UÍA
Grindahlaupin.
Stefán Hallgrímsson hafði yfirburði í báðum
grindahlaupunum og má búast við að hann bæti ís-
landsmet sitt í 400 m grindahlaupi á nassta sumri. Þor-
steinn Þórsson, Kristján Þráinsson og Pétur Péturs-
son eru á framfarabraut í grindahlaupunum.
Þorsteinn
Þórsson
UMSS
Stökkin.
Framfarir í hástökki urðu verulegar og langstökkið
var heldur skárra en 1977. Stöðnun er aftur á móti í
þrístökki. Stangarstökkið mjakast örlítið í áttina.
Karl West kom á óvart í hástökkinu með því að
stökkva 2.00 m, eftir fjarveru frá keppni í nokkurn
tíma. Þá komu Stefán Friðleifsson og Þorsteinn Þórs-
son mjög á óvart. Framfarir þeirra voru miklar en
báða skortir að ná jafnari árangri í keppni. Breiddin í
langstökkinu var meiri en 1977 en slakt að enginn
náði 7 m markinu. Vonir voru bundnar við að Jón
Oddsson næði góðum árangri, þær vonir brugðust,
enda æfði hann lítið sem ekkert á árinu með langstökk
í huga. Jón hefur hæfileika til að komast á alþjóðlegan
mælikvarða. Stefán er að ná sér á strik aftur í lang-
stökkinu og Pétur bætti sig verulega en skortir meira
öryggi. Rúnar bætti sinn árangur verulega í þrístökk-
inu. Rúnar vantar meiri hraða í atrennuna og þarf að
stórbæta stökkstílinn. Um stangarstökkið er lítið að
segja, þó eru Þorsteinn og Eggert á framfarabraut. En
Eggert verður meðalmennskunni að bráð, haldi hann
áfram að æfa jafnlítið og hann hefur gert hingað til.
Óskar
Reykdalsson
HSK
Köstín.
Óskar Reykdalsson hefur yfirburði í kúluvarpinu og
sýnir stöðugar framfarir. Það sama má segja um
Einar Vilhjálmsson í spjótkastinu. Óskar og Einar eru
Einar
Vilhjálmsson.
UMSB
efnilegustu kastarar á íslandi um þessar mundir. Þá
náðu nokkrir ungir menn athyglisverðum árangri i
kastgreinum, þó svo þeir leggi megináherslu á aðrar
greinar. Þeir eru Pétur, Vésteinn, Rúnar og Þorsteinn
Þórsson.
Fjölþrautír.
Framfarir urðu verulegar í fjölþrautum og voru þar
ungu mennirnir fremstir í flokki. Stefán er efstur á
blaði í tugþraut en fast á hæla hans koma Pétur og
Þorsteinn. Pétur og Vésteinn náðu svo mjög athyglis-
verðum árangri í fimmtarþrautinni. Pétur þarf að
bæta tæknina í grindahlaupinu og stangarstökkinu.
Þorsteinn er slakur í langstökki, kúluvarpi og kringlu-
kasti og þarf að bæta árangurinn í þeim greinum.
Vésteinn er seinn í spretthlaupunum og þarf að æfa í
samræmi við það.
14
SKINFAXI