Skinfaxi - 01.02.1979, Side 15
KONUR
Spretthlaupin.
Ánægjulegar framfarir urðu í spretthlaupunum.
Bergþóra hafði yfirburði i 100 m hlaupinu en vantar
meira sprettúthald (meiri æfingu), til að ná góðum
Bergþóra
Benónýsdóttir
HSÞ
árangri í 200 m. Bergþóra hefur hæfileika til að kom-
ast á alþjóðamælikvarða en tii þess að það gerist, þarf
hún að leggja mun meiri rækt við æfingar en hún
hefur gert hingað til. Hólmfríður er sterk sem fyrr en
vantar meiri mýkt til að hinn mikli kraftur nýtist sem
hún ræður yfir. Ásta B. er stórefnileg, en þarf að
leggja sig betur fram, bæði við æfingar og í keppni.
Kristín náði sínum besta árangri í sumar en meiddist
þó á miðju sumri.
Millivegalengdahlaup
Guðrún Sveinsdóttir og Anna Hannesdóttir komu
mjög á óvart og bættu árangur sinn verulega. Guðrún
sýndi dugnað við æfingr sem skilaði sér í stórbættum
árangri. Anna er vafalaust mesta hlauparaefni sem
fram hefur komið hér á landi. Væri óskandi að Anna
sætti sig ekki við að verða bara efnileg, heldur setti
markið strax á að ná alþjóðamælikvarða. Aðrar
stúlkur sem sýndu framfarir í sumar voru t.d. Thelma,
Guðrún Bjarnadóttir, Sigurbjörg og Hjördís.
Stökkin.
Árangur i hástökki fer batnandi með hverju árinu
sem liður. En kyrrstaða hefur verið i nokkur ár í lang-
stökkinu. íris er stórefnileg og hefur hæfileika til að
verða meðal þeirra bestu. María náði mun jafnari
tris
Jónsdóttir
UMSK
árangri en þarf meiri styrk til að bæta árangur sinn í
framtíðinni. Kristjana stóð í stað í hástökkinu enda
æfði hún með 800 m hlaup í huga. Oddný og Ásta B.
eru efstar á blaði í langstökkinu en árangur þeirra og
annarra í langstökkinu einkennist af æfingarleysi.
Flestar stúlkurnar hafa kraft og hraða til að stökkva
mun lengra en þær gera, vantar aðeins tæknilega
þjálfun.
Köstín.
Guðrún Ingólfsdóttir hafði algera yfirburði í kúlu
varpi og kringlukasti enda eina konan sem einhverja
rækt leggur við æfingar í þessum greinum. Fyrir utan
árangur Guðrúnar er árangurinn í kastgreinunum al
ger hörmung. Ástæðan er einfaldlega sú að konurnar
leggja ekki rækt við æfingar í köstum eins og öðrum
greinum. Ungir og efnilegir kvenkastarar eru að koma
upp og er vonandi að þær stúlkur Iáti ekki glepjast af
æfingaraðferðum fyrirrennara sinna, heldur brjótist
upp úr lágkúrunni. lris Grönfeldt, Hrönn Harðardótt-
ir, Þuríður Einarsdóttir og María Guðnadóttir ásamt
Guðrúnu Ingólfs ættu að hafa forystu um þessar
breytingar.
Fjölþrautír og grindahlaup.
Lítil rækt var lögð við þessar greinar sem líklega
stafar af aðstöðuleysi út um land.
tris
Grönfeldt
UMSB