Skinfaxi - 01.02.1979, Blaðsíða 19
Aösetur ungmennabúö-
anna.
Aðalsteinn Pálsson:
Norræna ungmennavikan 78
Eins og flestir vita, þá er UMFÍ aðili að
samtökum ungmennafélaga á Norðurlönd-
um, „NSU”, er hefur á stefnuskrá sinni að
efla alls kyns samskipti meðal ungmenna-
hreyfingarinnar á Norðurlöndum. Það
verkefni sem ber sennilega hæst af þessum
samskiptum er Norræna ungmennavikan,
þar sem íslendingar hafa verið þátttakend-
ur síðastliðin 5 ár. Hvert land hefur mátt
senda 20 þátttakendur og hafa löndin
skipst á að halda ungmennavikuna.
síðastliðið sumaT var hún haldin í
Sviþjóð, nánar tiltekið í Osby á norður
Skáni vikuna 23.-29. júlí. Þann 23. júlí
héldu utan 9 þátttakendur fyrir íslands
hönd. Rétt er að benda lesendum á þessa
dagsetningu. Um þessa helgi var 16. Lands-
mót UMFÍ haldið, þannig að ungmenna-
vikan féll i skuggann af undirbúningi
SKINFAXI
Landsmótsins og þátttakendafjöldinn varð
ekki meiri en raun bar vitni. En út fór
hópurinn hvað sem öðru leið og gekk
ferðin í alla staði vel.
Aðalsteinn Pálsson og ungmennabúðastjóri.
19