Skinfaxi - 01.02.1979, Síða 24
Það hefur trúlega ekki farið framhjá
neinum að árið sem fyrir ekki alllöngu gekk
í garð, er tileinkað barninu.
Skinfaxa hefur allavega borist njósn af
þessu mikla ári og vill hann í þeim efnum
síst af öllum láta sitt eftir liggja og freista
þess að fórna, hverju sinni, rými nokkru til
handa þeim er ungir eru að árum og erfa
skulu land. Hvort framhald verður á þeirri
viðleitni eftir að barnaári lýkur fer eftir því
hvernig til tekst, því það er álit Skinfaxa, að
börnin haldi áfram að verða til þótt bama-
ári ljúki. Kæri lesandi, sé á þínu heimili lítil
sál en þó orðin læs ættir þú að lofa henni
að berja sitt horn augum og hlera um leið
viðtökur, og ekki sakaði að þú eyddir tíma
með þeim er ekki hefur enn náð tökum á
þeirri galdrakúnst sem kallast að lesa.
Margir krakkar hafa gaman af því að
grúska og vita hitt og þetta, og kannski
hefur þú vitað um það sem hér fer á eftir.
Samt sem áður VEISTU?
1. Að Skúli Óskarsson ÚíA, lyftingamað
BARIMA-
Hvað stendur á blaðinu?
Ef þú ert boðinn i afmæli eða eitthvert annað
þar sem þú ert innan um jafnaldra, þá er hér smá-
vegis sem þú getur haft í pokahorninu til gamans.
Fáðu einhvern félaga þinn til þess að skrifa eitt-
hvert orö á blað. Þegar hann hefur lokiö þvi, biður
þú hann um að brjóta blaöið saman, leggja það á
gólfið, og í öryggisskyni, að stíga ofan á það.
Siðan segir þú honum að þú ætlir að segja honum
og öðrum hvað standi á blaðinu. Þú tekur púlsinn
hjá honum, leggur hendi á enni hans o.fl. f þeim
dúr, en sfðan segir þú. Nú skal ég segja þér hvað
stendur á blaðinu. Það er fóturinn á þér!
ur og íþróttamaður ársins 1978, var 4
merkur (1 kg) þegar hann fæddist
2. Að til eru 185 ungmennafélög í land-
inu.
3. Að næsta landsmót UMFÍ verður á
Akureyri 1981.
4. Að Kristján Ágústsson og Ríkharður
Hrafnkelsson sem leika með Val í úr-
valsdeildinni í körfubolta eru báðir frá
Umf. Snæfell í Stykkishólmi.
5. Að ekkert ungmennafélag er á Akur
eyri.
Jósk smásaga
Strákur og stelpa standa og tala saman.
Hann: Má ég kyssa þig?
Hún: Gettu.
Hann: Ég má þaö ekki?
Hún: Gettu aftur.
Hann: Ég má það?
Hún: Hvcrnig gastu vitað það?
24
SKINFAXI