Skinfaxi - 01.10.1980, Side 12
Viðtaí við
Torc 0stcrás
forrnann NSU
Formaður NSU Tore 0sterás
var endurkjörinn á fundinum í
Bifröst, en hann tók við embætti
þessu 1976. Okkur fannst rétt að
kynnast manninum örlítið og
lögðum því nokkrar spurningar
fyrir hann.
Fyrsta spurningin vardaði aldur
og uppruna.
Eg er 37 ára — ættaður frá
Steinkjer í Þrændalegi. Ég er al-
inn upp á sveitabæ, næstelstur al'
sjö systkinum. Ég hef að mestu
unnið heima og tók við búinu
1968 og síðan höfum við tveir rck-
ið búið.
Nú hefur þú mikinn áhuga á
landbúnaðarmálum almennt?
Já, ég hef mikinn áhuga á
því sem gerist í þjóðfélaginu en
þó sérstaklega innan landbúnað-
arins. Þess vegna er ég við nám í
Norska Landbúnaðarháskólan-
um. Námið tekur 4 ár og lýk ég
prófi 1982.
Pú hefur mikinn áhuga á starfs-
íþróttum?
Já, ég hef starfað talsvert að
þeim málum og hef verið svo
heppinn að verða tvisvar Noregs-
þjálfum við leiðtogaefni fyrir æskulýðsstarfssemi
okkar? og 2. Þróun og stefna norrænna samskipta
innan NSU og hvert er hlutverk heildarsamtakanna
í þessum efnum.
Éins og sjá má af þessu efnisvali er á þessum
námskeiðum verið að fjalla beint um innri mál
NSU, skipulag, hlutverk, leiðtogamenntun o.s.frv.
°g þá gjarnan verið að bcra saman aðferðir og á-
hugamál hinna einstöku aðildarsambanda og
landa. Af háll'u UMFÍ sátu ráðstefnuna Sigurður
Geirdal sem stjórnaði námskeiðinu, Pálmi Gíslason,
Jón Guðbjörnsson og Guðmundur Guðmundsson
sem llutti framsöguerindi UMFÍ fyrri dag ráðstefn-
unnar.
I'yrri daginn var fræðslustarfssemi tekin fyrirog á
þann hátt að frá hverju landi kom a.m.k, eitt fram
söguerindi um skipulag og stefnu í fræðslumálum,
síðan var lulltrúum skipt í starfshópa, og eftir að þeir
hölðu skilað áliti hófust almennar umræður.
Seinni daginn var fjallað um samskiptin milli að-
ildarfélaganna og hlutverk NSU.
I ore 0steras formaður NSU hafði framsögu í
málinu og síðan voru við hölð sömu vinnubrögð og
fyrri daginn.
Báða daganna voru umræður Ijörugar og mjög
upplýsandi um áhugamál og vinnubrögð aðildar-
sambandanna, þarna lærðu menn því mikið um
hvern annan og má segja að þessi námskeið séu
sterkur liður í upplýsingastarfsemi og innbyrgðis
kynningu NSU.
Það yrði of langt mál að fara að tíunda umræður
hér, eða þær upplýsingar sem fram komu, en etv.
gefst tækifæri til þess síðar.
Til að gera gestum okkar dvölina ánægjulegri og
auka kynni milli fulltrúanna, var farið í gönguferðir í
nágrenni Bifrastar og farið mcð allan hópinn í réttir
Og ökuferð um Borgarljörðinn, undir leiðsögn Jóns
öuðbjörnssonar og svo voru kvöldvökur á kvöldin í
Bifröst og á eina slíka mættu þeir Ofeigur Gestsson
og Ingimundur Ingimundarson. Sýndu þeir kvik-
mynd frá Landsmótinu 1975 og sögðu frá starli
UMSB.
I heild má segja að framkvæmd þings og nám-
skeiðs hafi heppnast ljómandi vel, húsnæði og viður-
gerningur allur í Bifröst var til mikillar fyrirmyndar
og ef marka má umsagnir gestanna um framkvæmd
og móttökur, þá má UMFI vel við una.
Sig. Geirdal.
12
SKINFAXI