Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.10.1980, Side 14

Skinfaxi - 01.10.1980, Side 14
ÞRfllNN HRFST6INSSON: SHklað á stóriA BIKRRK€PPNI Ffíí 80 1. deild: UMSK hefur síðasta áratug verið það lið sem hefur getað ógn- að Reykjavíkurfélögunum veru- lega í Bikarkeppninni. Svo varð ekki í þetta skiptið og UMSK féll í 2. deild. Karlaliðið stóð sæmilega fyrir sínu, en kvennaliðið var á- berandi slakt. Ef þróunin verður sú sama og veriö hefur hjá UMSK, verður síður en svo auð- velt fyrir liðið að endurheimta sæti sitt í 1. deild. 2. deild. Oll liðin í 2. deild voru héraðs- sambönd og var keppnin í Borg- arnesi. Ein sú harðasta og mest spennandi sem fram hefur farið hér á landi. Borgfirðingar UMSB, sigruðu og unnu sér sæti í 1. deildar- keppninni að ári. Heimamenn voru vel að sigrinum komnir, þeir hafa verið að byggja upp sitt starf á síðastliðnum 6—8 árum og ár- angurinn að koma í Ijós nú. Liðið cr byggt upp að miklum hluta á landsliðsfólkinu Jóni Diðrikssyni, Einari Vilhjálmssyni, Ágústi Þor- steinssyni og systrunum írisi og Svövu Grönfeldt. Róðurinn verð- ur eríiður fyrir lið UMSB í 1. deild, því ýmsir veikir hlekkir eru í liðinu eins og er s.s. grindahlaup, hástökk og stangarstökk í karla- liði og langhlaupin í kvennalið- inu. En vonandi tekst Borgfirð- ingum að þjálfa upp keppnisfólk í þessar greinar fyrir næstu 1. deildarkeppni. Lið UIA hafnaði í öðru sæti ásamt UMSE. Árangur þessi hlít- ur að teljast mjög góður þar sem liðið vann sig upp úr 3. deild 1979. Karlaliðið kom mjög vel frá keppninni með Stefán Hallgríms- son, Brynjólf Hilmarsson og Pét- ur Pétursson sem aðalmenn. Kvennaliðið var aftur á móti mun slakara. I kvennaliðinu hafa orðið mikil umskipti síðan 1978, þá voru hlaupagreinarnar sterkasta hlið liðsins. Nú bregður svo við að hlaupagreinarnar eru slakar en kastgreinarnar góðar, með Helgu Unnarsdóttur sem keppanda í þeim öllum. UIA liðið verður örugglega í toppbaráttunni í 2. deild á næsta ári, en þó kemur brottför Stefáns Hallgrímssonar til með að veikja liðið nokkuð. Eyfirðingar komu eflaust mest á óvart. Eftir áreiðanlegum heim- ildum hef ég það að flest keppnis- fólk UMSE hafi farið í keppnina til að halda sæti sínu í 2. deild. Það tókst og vel það. Með Hólm- fríði Erlingsdóttur, Sigurbjörgu Karlsdóttur og Sigurlínu Hreið- arsdóttur í fararbroddi sigraði UMSE í kvennakeppninni með yfirburðum. Karlaliðið var ekki eins jafngott. Guðmundur Sig- urðsson sem keppti í 200m, 400m, 800m, 1500m hlaupunum, lang- stökki og þrístökki stóð hcldur Bodhlaupssveil UMSB í 4x100 m og 1(XX) m hlaupum í Bikarkeppni FRÍ í 2. deild. Frá vinstri: Hjördís Arnadóttir, Svava Grönfeldt, Anna Bjarnadóltir og Ingveldur Ingi- bergsdóttir. 14 SKINf-AXI

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.