Skinfaxi - 01.10.1980, Page 19
Frá landsmótinu á Laugarvatni 1965. Þórir Þorgeirsson og Minerva Jónsdóttir stjórna fimleikasýningu.
fékkst seint til að hefja æfingar á
vorin og cfatt úr allri æfingu yfir
veturinn. Eftir að körfubolti kom
til sögunnar fékk ég íþróttafólkið
til að æfa hann. Það hélt fólki að
nokkru við og hægt að stunda
hann þó íþróttasalir væru ekki
stórir. Svo er því ekki að neita að
aðstaða mín sem íþróttakennari
hér gaf mér ýmsa möguleika til að
finna efnilegt íþróttafólk.
Nú tengist saga þín landsmótun-
um töluvert?
Eg hef starfað á þcim öllum allt
frá 1940. Eg vann ekki að undir-
búningi mótsins í Haukadal, en
hef unnið að undirbúningi ann-
árraallttil 1974.
Nú minnist ég þess að það hefur
verið mikil reisn yfir komu ykkar
á landsmótin, margir og vel
merkdr bílar og samstæður hóp-
ur.
Já, þetta hafa verið skemmti-
legar ferðir. Ég hef átt mjög gott
samstarfvið þetta fólk. Ég minnist
þess ekki að nokkurn tíma hafi
komið upp leiðindamál í þessum
ferðum. Hópurinn hefur alltaf
verið býsna stór, enda hefég lagt á
það áherslu að vera með fulla
skráningu í hverri grein.
Sumar þessar ferðir hafa verið
býsna strangar t.d. minnist ég
ferðar á landsmótið á Laugum
1946, þá fórum við í boddíbíl sem
kallað var. Ferðin tók tvo daga og
hristingurinn var ógurlegur enda
vegirnir ekki góðir í þá daga. En
ferðin var engu síður skemmtileg
og einn er sá þáttur sem er ákaf-
lega mikilvægur, það eru kynni
fólksins sem mótin sækja.
Mannstu ekki einhvern atburð
sem er þér sérstaklega minnis-
stæðurfrá þessum mótum?
Það eru auðvitað mörg minnis-
stæð atvik. Mótin hafa verið hvert
með sínu sniði. Mótið í Haukadal
var haldið við mjög frumstæðar
aðstæður og hreint furðulegt að
það skyldi vera hægt að halda það.
Mótið í Hveragerði 1948 fór fram
í ausandi rigningu þannig að allt
var á floti. Og eiginlega er það
merkilegt að fyrir utan þetta mót
þá hefur alltaf verið gott veður á
mótunum. Landsmótið hér á
Laugarvatni 1965 er kannski
minnisstæðast. Það veður sem við
fengum þá var svo einstakt og sá
mikli fjöldi fólks sem þangað kom
var með ólíkindum. Á Eiðum
1952 fór hitinn í lauginni niður í 4
stig, og enn dáist ég að krökk-
unum sem létu sig hfa það og tóku
þátt í sundinu. Þá finnst mér sér-
stök ástæða til að þakka Þorsteini
Einarssyni fyrir góða stjórn á
SKINFAXI
19