Skinfaxi - 01.10.1980, Qupperneq 24
Einar Höskuldsson bóndi á Mosfelli hefur ávallt fúslega veitt okkur aðstöðu í landi sínu
niðri við Svínavatn.
Farið varí ,,sjóorrustur" á prömmunum og fengu þá margir að fljúgaí vatnið. Veðriðlék
við okkur alla dagana en það hefur mjög mikið að segja og gerir dvölina mun skemmti-
legri.
Þegar átt er við heföbundinn hátt,
er aðaluppistaðan íþróttir kvöld-
vökur og fleira.
A Laugavatni er mjög ákjósan-
legt að halda sumarbúðir vegna
þess hve staðurinn er fagur og allt
sem til þarf við hendina, og gjarn-
an látið í té af heimamönnum af
mikilli ánægju.
Barnaskólahúsið er notað fyrir
starfsemina. Þar er mötuneyti
svefnstofur að ógleymdum sal
sem vel hentar til leikja og sam-
komuhalds. I þetta sinn voru
sumarbúðirnar illa sóttar. Hverju
sem er um að kenna, þá er vitað að
það var hvorki vegna staðarins né
umsjónafólksins.
Talsvert bar á því að krakkar úr
Reykjavík eða enn lengra í burtu
sæktu sumarbúðirnar.
Hjá stjórn HSK er fullur vilji
fyrir því að halda áfram með sum-
arbúðir og þá einmitt á Laugar-
vatni.
Þegar talað er við krakka sem
voru þarna í sumar er greinilegt
að þau hafa skemmt sér mjög vel,
og hafa fullan hug á að vera með á
sumri komandi.
Stjórn HSK þakkar ráðamönn-
um á Laugarvatni alla fyrir-
greiðslu, s.l. sumar svo og þeim
sem að sumarbúðunum unnu.
Wmtíá
Einingasmíðnð
tiniburliús
FRAMLEIDD í
VESTMANNAEYJUM
Smíðum timburhús eftir okkar eigin teikningum, svo og eftir öllum
öðrum teikningum og sérþörfum hvers og eins.
„Rishús landsnýjnnjf' Hringið eftir upplýsingum.
ÞETTA ER ÞAÐ ÓDÝRASTA!
Trésmiðja Gunnars
Hellisholti — Sími 98-1249— Sími heima 98-2582.
24
SKINFAXI