Skinfaxi - 01.10.1980, Síða 30
Fjö Iskyíduhátíð
í Þrasiaskógi
Síðustu helgina í júlí hélt HSK
Ijölskylduhátíð í Þrastaskógi, í til-
efni af 70 ára afmæli sambands-
ins. *
Ein eins og allir vita er Þrasta-
skógur eign UMFI. Þar er nánast
sagt eitt fegursta umhverfi í Ar-
nessýslu og jafnvel þótt víðar væri
leitað.
Heldur fannst þeim sem að
undirbúningi þessarar hátíðar
stóðu aðkoman í Þrastaskógi öm-
urleg. Völlurinn, sem útbúinn var
fyrir nokkrum árum vægast sagt í
megnustu óhirðu. Osleginn og
sennilega hefur ekki verið borið á
hann í allt sumar.
Það má kannski segja að undir-
búningur að hátíðinni hafi verið
snöggsoðinn en þó ekki sneggri en
það að allt var til reiðu þegar sam-
koman hófst og allt gekk vel og
snurðulaust fyrir sig.
Inn á svæðinu var reist tjald
sambandsins sem er um 100 m2 á
stærð, sett gólf í tjaldið, smíðað
leiksvið, ræðustóll og allt tilheyr-
andi.
A meðan að á undirbúningi
stóð dvaldi undirbúningsfólkið í
húsi UMFÍ. Var þar oft glatt á
hjalla enda margt fólk sem vann
að undirbúningi.
Samkoman hófst með því að
Hafsteinn Þorvaldsson sagði
nokkur orð um Þrastaskóg og
UMFÍ , góður rómur var gerður
að orðum Hafsteins.
Fftir ávarpið hófust skemmti-
atriði sem samkomugestir tóku
þátt í. Reiptog, pokahlaup, þrí-
fótahlaup, sýndur var leikþáttur
og fl.
I pokahlaupi og reiptogi sem
fór fram á milli stelpna og stráka
sigruðu stelpurnar.
Það sem vakti mesta hrifningu
meðal áhorfenda, var þegar nú-
verandi stjórn HSK og fyrrver-
andi stjórnarmenn sem mættir
voru á staðnum kepptu í poka-
hlaupi. Mátti þarna sjá margan
kappan, gráan fyrir járnum og
misjafnlega íþróttamannslega
vaxinn, troða sér í poka og hlaupa
eða hoppa eftir bestu getu. Hverj-
ir unnu veit nú enginn enda allt í
lagi vegna þess að ekki var keppt
til verðlauna.
Þegar auglýst dagskrá var
tæmd skemmti fólk sér sjálft fram
eftir degi. Sumir fóru í fótbolta,
aðrir í svifdiskakast en aðrir döns-
uðu í tjaldinu við dynjandi músík
úr Diskóteki Umf. Skeiðamanna.
Þennan dag var veðrið eins og
best verður á kosið, sólskin og
gola.
fil'tir þá reynslu sem Skarphéð-
insmenn hafa nú af samkomu-
haldi í Þrastaskógi, er óhætt að
segja að fullur vilji er hjá þeim að
endurtaka þetta.
En þá væri mjög gott að til væru
á staðnum fleiri bílastæði. Það er
lítið af þeim í Þrastaskógi.
Svo verður að stöðva ágang
sauðkinda því með sama áfram-
haldi verður ekki hægt að fmna
hreinan blett í Þrastaskógi til að
tilla sér á.
Þetta þyrfti að laga strax næsta
sumar svo Þrastaskógur eign
UMFI, megi verða okkur öllum
til ánægju og sóma hér eftir sem
hingað til.
KJ
30
SKINFAXl