Skinfaxi - 01.12.1980, Síða 22
Frá félagsmálanámskeiðinu á Kirkjubóli: Ágústína Bernharðsóttir, Mœðginin Ásta Ásvaldsdóttir og Ásvaldur Magnússon í
Sólveig Ingvarsdóttir og Guðmundur Ingi Kristjdnsson. Tröð sóttu félagsmálanámskeiðið á Kirkjubóli. Ásvaldur
erforntaður Umf. Onundar
Hvernig var þátttaka í göngudegi
fjölskyldunnar?
Það var mjög góð þátttaka í
göngudeginum. Eg vildi svo sann-
arlega að sá dagur yrði tekinn upp
sem árlegur viðburður. Þá fengi
fjölskyldan sér göngutúr. Rétt
geturðu ímyndað þér hvort ekki
hefur verið gaman að sjá 4 ættliði
saman á gangi hér út með Onund-
arfirði nú í sumar. Eg vona að svo
verði áfram því trimm og öll
hreyfing er nauðsynleg.
HVI átti í 3. sinn þátttakanda í
norrænu ungmennavikunni s.l.
sumar?
Já, ég held að það sé rétt að
þetta hafi verið í 3. skipti. Því mið-
ur hefur ekki verið nógu góð þátt-
taka héðan. Við höfum reynt að
létta róðurinn. Þetta var nokkuð
dýrt fyrirtæki í sumar en við
greiddum fargjaldið innanlands
fyrir stúlkuna sem frá okkur fór.
Eg veit að þau sem frá okkur hafa
farið áður eiga þaðan góðar minn-
ingar.
Þú hefur oft verið ómyrkur í máli
þegar þú talar til landssamtakana
UMFI og ISI. Hvernig eru þau
tengsl í dag?
Það er nú ekki gott að gagnrýna
þjónustumiðstöð UMFI. Þar eru
allir boðnir og búnir til þess að
rétta hjálparhönd út á land og
veita þær upplýsingar sem unnt er.
Ég get ekki annað en sagt það
sama um starfsfólk ISI. Þar er ný-
lega búið að skipta um formann.
Sveinn Björnsson gerði víðreist
um landið meðan liann var vara-
formaður og ég vona að þau tengsl
haldi áfram. Annars finnstmér þeir
megi skipta því meira á milli sín
hverjir fara út á land. Ég veit ekki
Á ferð okkar milli námsKeiða hittum við
gjaldkera HVl, Asvald Guðmundsson,
þarsem hann varað rafsjóða ýtutönn.
hvernig þeir ætla að halda sam-
bandi efenginn fer út á land nema
Hermann Guðmundsson. Ut-
breiðslustjórinn mætti t.d. koma
miklu oftar en hann gerir. A síð-
asta íþróttaþingi tók sæti í stjórn
ÍSÍ formaður UMSK Jón Ár-
mann Héðinsson. Ég bind miklar
vonir við að hann láti gott af sér
leiða á þeim vetvangi.
Félagsmálafrœðslan ?
Félagsmálafræðslan hefur verið
á stefnuskrá síðustu 6 ár. Hér í
sýslunni hafa aðeins verið færð
upp 2 námskeið. Núna í haust
upphófst mikill áhugi fyrir
félagsmálafræðslu í Onundarfirði
og víðar. Það var mjög ánægjulegt
að fá þessa vítamínsprautu og ég
lield að íþróttakennarinn sem var
hjá Gretti haíí hjálpað mikið til.
Fólk sýndi þessu mikinn áhuga
enda héldum við á 10 dögum 5
námskeið. 1 helgarnámskeið á
Núpi og síðan voru haldin 4 nám-
skeið á dag. Á Flateyri fyrir há-
degi og annað strax eftir mat,
þriðja inn í Önundarfirði kl. 4 og
að síðustu kvöldnámskeið á Flat-
eyri. Þarna hefur hugur fylgt máli
og ég vona svo sannarlega að
þetta geti haldið áfram.
Eg vil þakka Diðrik Halalds-
syni fyrir hans framlag og hjálp til
að hrinda þessu í framkvæmd.
22
SKINFAXI