Skinfaxi - 01.02.1981, Blaðsíða 10
iðleikum með að halda sér í 1.
deild með núverandi fyrirkomu-
lagi. Þetta hefur náttúrlega komið
út í miklu betra landsliði. Við get-
um nefnt ýmis dæmi. Fyrir 2 ár-
um unnum við Skota í landsleik,
þeir fóru síðan í Evrópukeppni og
unnu sig upp í B-riðil, en íslenska
landsliðið tók ékki þátt í þeirri
keppni. I fyrra urðum við svo í 3ja
sæti á Norðurlandamótinu..Unn-
um Dani og Norðmenn með mikl-
um mun. En þessum þjóðum hef-
ur farið mikið fram. Síðan tóku
Norðmenn þátt í undankeppni
fyrir Olympíuleikana. Eftir þá
keppni fengu þeir það sæmdar
heiti að vera talin sú þjóð sem
mest heíði farið f'ram á árinu. En
fyrir 3 árum töpuðum við fyrir
þeim 2 leikjum af 3. Þá unnum við
Kínverjana einmg í fyrra, en þess
má geta að þeir höfðu sigrað
Finna á leiðinni hingað. Sigrarnir
yfir Frökkum núna fyrir áramót
eru líklega besti árangur sem liðið
hefur náð. Þó má segja að við sjá-
um ekki almennilega hvernig við
stöndum fyrr en í C-keppninni í
vor.
Hvemig standa fjármál
KKÍ?
KKI hefur verið rekið seinustu
3 ár eins og fyrirtæki. Það hefur
verið stefna okkar að reka sam-
bandið innan þess ramma sem
fjármálin leyfa. Þó koma upp
verkefni á nokkura ára fresti sem
eru okkur dýr t.d. etns og Norður-
landamótið í janúar og þau ár
verður ekki komist hjá taprekstri.
Þetta veldur því að útkoman hjá
okkur í ár verður að öllum líkind-
um ekki eins góð og seinustu 2 ár,
en þá var sambandið rekið mec
hagnaði. Því er ekki að leyna að
fjármálin æru ákaílega ótrygg.
Tekjustofnar sérsambanda eru
ákaílega óvissir og framlagið frá
því opinbera er varla neitt til að
tala um. Við stöndum miklu verr
að vígi með stuðning frá ríkinu en
samböndin á hinum Norðurlönd-
unum. Það sem við fáum er ekkert
nálægt því sem gerist þar þó mið-
að sé við höíðatölu.
Að lokum, önnur viðfangs-
efni KKÍ?
Það éru mót fyrir utan þessar
heíðbundnu keppnir. Skólamót
og mót fyrir trimmara (íirma-
keppni). Við leggjum áherslu á að
koma upp íjölbreyttu kennsluefni.
Það sem við einkum þörfnumst í
dag er aukin almenn menntun
þ.e.a.s. kennsla í fræðilegri undir-
stöðu og þá sérstaklega fyrir þá
sem keppa í íþróttinni. Mikið verk
er að fylgjast með öllum þeim nýj-
ungum sem upp koma í íþróttinni
og kom þeim til skila. Við höfum
áhuga á að bæta okkur þarna.
Þá má geta pcss í lokin að við
erum með opna skrifstofu í I-
þróttamiðstöðinni í Laugardal og
er síminn 85949 en þar veitum
við öllum þeim er þess óska allar
upplýsingar um íþróttina.
Skinfaxi þakkar Stefáni fyrir
spjallið og óskar körfuknattleiks-
mönnum góðs gengis í framtíð-
inni.
SP.
10
SKINFAXI