Skinfaxi - 01.02.1981, Blaðsíða 15
að áhugi manna á vesturlöndum
vaknaði á hinum f'ornu bardaga-
listum Japana þó júdóið hafi að
sjalfsögðu náð mestri hylli al-
•nennings.
JÚDÓ fi ISLfiNDI
Upphaf iðkunar á júdó, hér-
lendis, má rekja til ársins 1957. Þá
hóf Glímufélagið Ármann reglu-
bundnar æfmgar í greininni og
var aðdragandi þess m.a. sá að
þegar hnefáleikar voru bannaðir
nieð lögum á Islandi þá beittu
ýmsir þeir sem áður höfðu stund-
að hnefaleika með Ármanni sér
ívrir því að teknar yrðu upp æf-
*ngar í Júdó. Hin nýja grein þótti
aU nýstárleg og liaft var á orði að
þar væri á ferðinni náttfataslagur
a japanska vísu Segja má að strax
1 upphafi hafi áhugi íslendinga á
'þróffinni vaknað og skyldi engan
undra, þjóðaríþróttin glíman og
judó eiga margt sameiginlegt. Eft-
lr að æfingar hófust hjá Ármanni
toku ýmis félög, bæði í Reykjavík
°g úti á landsbyggðinni, til við að
®fa júdó.
I dag er júdó æft víða um land
en fjarstæða væri að halda því
li'am að það sé verulega útbreytt.
■■Vöallega liefur greinin náð fót-
festu á höfuðborgarsvæðinu, á
Suðurnesjum, Akureyri og í Vest-
mannaeyjum. Menn hafa gjarnan
spurt hvers vegna júdó er ekki æft
víðar en raun ber vitni og fyrir því
Hggja aðallega tværástæður. Fyrri
astæðuna varður að telja hinn gíf-
urlega stofnkostnað. Það er ekkert
nfilaupaverk fyrir fámenn ung-
nienna- og íþróttafélög að fjár-
festa í dýnum og e.t.v. húsnæði
undir greinina. Flest berjast þessi
félög í bökkum fjárhagslega og sú
sorglega staðreynd blasir við að
þau hafa varla yfir að ráða nægu
fjármagni til þess að annast dag-
legan rekstur. Seinni átæðuna
sem má tilnefna er skortur á hæf-
uni þjálfurum. Júdó er ákaflega
teknisk og nákvæm íþrótt og því
liggur í augum uppi að það er ekki
á hvers manns færi að hlaupa til
og ætla að hefja þjálfun hjá ein-
hverju félagi. Þessi þjálfaraskort-
ur hefur sniðið viðgangi íþróttar-
innar ákafiega þröngan stakk. Til
dæmis má nefna að skortur á hæf-
um þjálfurum varð til þess að í-
þróttin lagðist niður á Isafirði.
Júdósamband Islands hefur reynt
að mæta þessum skorti með þjálf-
aranámskeiðum og var síðast
haldið námskeið fyrir nokkrum
árum og fyrirhugað er að halda
námskeið í ár. Það er von þeirra
sem eru í forsvari fyrir íþróttinni
að það námskeið verði til að bæta
verulega úr miklum skorti félag-
anna á leiðbeinendum.
Síðasta ár sýndi ótvírætt hve Is-
lendingar standa framarlega í
greininni. Islendingar eiga júdó-
fólk á alþjóðamælikvarða og
glögglega hefur það komið í ljós
hverjir hæfileikar búa með okkar
unga fólki. Þetta er óneitanlega
nokkuð erfið íþróttagrein og hún
gerir miklar kröfur til iðkenda
sinna en unnin afrek sýna best hve
mikið íslendigar hafa þar til
brunns að bera. Við skulum enda
þennan pistil með orðum Mar-
grétar Þráinsdóttur, sigurvegara
úr Opna Skandinaviska mótinu í
ár: ,Júdó er ákaflega skemmtileg
og fjölbreytt íþrótt og að mínu
mati mjög þroskandi og júdó er
fyrir alla sem liafa áhuga á góðri
og fjölþættri þjálfun, hvort sent
æft er með keppni fyrir augum eða
ekki. Líkamsbygging skiptir þar
engu máli, aðeins hugarfarið.”
Þór Indriðason.
SKINFAXI
15