Skinfaxi - 01.02.1981, Blaðsíða 11
Frá
Landsmótsneind
Búið er að ráða lcikstjóra í hinar einstöku keppn-
isgreinar Landsmótsins. Þeir eru:
I sundi: Jóhann Möller, Akureyri.
I glímu: Amgrímur Geirsson, S-Þing.
I júdó: Jón Hjaltason, Akureyri.
I borðtennis: Sveina Sveinbjömsd., S-Þing.
I skák: Albert Sigurðsson, Akureyri.
I knattspyrnu: Birgir Marinósson, Akureyri.
I handknattleik: Amar Einarsson, Akureyri.
I körfuknattleik: Þröstur Guðjónsson, Akureyri.
I biaki: Halldór Jónsson, Akureyri.
I frjálsum íþróttum: Sigurður V. Sigmundsson S-Þing.
í starfsíþróttum: Guðmundur Steindórss., Akureyri.
Skák.
Samkvæmt Landsmótsreglugerð á forkeppni í
skák að fara fram á tímabilinu 1. jan. — 15. júní
landsmótsár. Til úrslita keppi 6 efstu sveitirnar á
landsmóti. ’l'ilkynningar um þátttöku þurfa að
berast fyrir 1. mars.
Hópíþróttir.
Eins og kunnugt er, verður ekki forkeppni í
eftirtöldum hópíþróttum: Handknattleik kvenna,
körfuknattleik karla og blaki karla. Af skipulags-
ástæðum er nauðsynlegt að vita um þátttöku með
nokkrum fyrirvara. Er þ\ í óskað eftir tilkynning-
um um þátttöku fyrir 1. maí.
Golf.
Komið hefur til tals að koma á keppni í golfi á
landsmótinu sem sýningargrein. Golfvöllurinn á
Akureyri er upptekinn tvo fyrstu mótsdagana, svo
eina leiðin til að koma á slíkri keppni er að hún fari
fram síðasta mótsdaginn þ.e. sunnudaginn 12.
júlí.
Ef áhugi er á, að efna til golfkeppni á landsmót-
inu, er nauðsynlegt að óskir um það komi fram
fyrir 1. mars.
Kynningargreinar.
I ráði er að keppni fari fram í siglingum, lyfting-
um og fimleikum, sem kynningargreinum og
verður þeirra nánar getið innan skamms.
Aðsetur Landsmótsnefndar.
Landsmótsnefnd hefur opnað skrifstofu að
Hjalteyrargötu 10, Akureyri sími 96-23707. Fyrst
urn sinn verður hún opin á þriðjudögum og
fimmtudögum á milli kl. 5 og 7 e.h. Þar verða til
viðtals Landsmótsnefndarmennirnir Þóroddur
Jóhannsson og Sigurður Harðarson.
Jótavnó'tlijá Umý. Batdri
Lfmí. Baldur Hvolhreppi hélt sitt árlega Jólamót í frjálsum íþróttum innanhúss dagana 29. og
30. desember s.l. Fór keppni fullorðinna fram fyrri daginn, en þann seinni var keppt í aldursilokk-
um 14 ára og yngri. Fyrirhugað var að keppa einnig í kúluvarpi, en þeirri keppni varð að lresta
vegna veðurs. Keppni var mikil á mótinu, en keppendur voru öllu fleiri seinni daginn. Bestum
árangri á mótinu náði Guðmundur Nikulásson er hann stökk 9.24 m í þrístökki. Setti hann þar
Baldursmet og um leið Rangæingamet. Anna Björk Einarsdóttir náði einnig ágætum árangri í
hástökki, er hún stökk 1.35m í aldursflokki 11—12 ára. Stighæstu einstaklingar urðu: Guðmundur
Nikulásson og Margrét B. Guðnadóttir.
Fyrirtæki á Hvolsvelli gáfu verðlaunapeninga á mótið og voru þeir veittir fyrir fyrsta sætið.
Mótstjórar voru þeir Ottó Olafur Gunnarsson og Örn Guðnason. ÖG.
SKINFAXI
11