Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1985, Side 5

Skinfaxi - 01.02.1985, Side 5
Guðjón Ingimundarson Sjötugur Pálmi Gíslason Þann 12. janúar s.l. varð Guð- jón Ingimundarson sjötugur. Þeir sem fylgst hafa með starfi ungmennafélaganna undanfarna áratugi þekkja Guðjón, síungan og léttan í spori. Guðjón er fæddur á Svanshóli í Strandasýslu, stundaði nám í Héraðsskólanum Reykholti, tók íþróttakennarapróf 1937 og síðar smíðakennarapróf í Handíða- skólanum. Guðjón kenndi í Hér- aðsskólanum Laugarvatni 1937 —41, flutti til Sauðárkróks 1941 og var þar búsettur síðan. Fyrst starfaði Guðjón sem kennari en frá 1958, þegar Sundlaug Sauðár- króks tók til starfa, hefur Guðjón verið forstöðumaður hennar og rekið með miklum myndarbrag. Kynni mín af Guðjóni hófust að ráði 1969 þegar ég var vara- maður í stjórn UMFÍ og sat alla stjórnarfundi. Þetta tímabil stóð í 4 ár. 1979 þegar ég varð formaður UMFÍ lagði ég ríka áherslu á að Guðjón sæti áfram í stjórn, en hann var þá farinn að hafa orð á að draga sig í hlé. Þá eins og oftast brást Guðjón vel við og sat í stjórn sem varaformaður til 1983. Guðjón var okkar elstur að árum en alltaf fannst mér hann yngstur í hugsun, fljótur að átta sig á mál- um, tillögugóður, heiðarlegur og réttsýnn. Ungmennafélagshreyfingin hef- ur ekki eignast marga hans jafn- oka. Hvaða verk sem hann tók sér fyrir hendur, lítið eða stórt, var leyst með ljúfum huga og alúð. Hann er virtur og dáður meðal okkar sem vorum svo lánsöm að starfa með honum og aldrei hef ég heyrt nokkurn mann mæla hnjóðsyrði um Guðjón. Guðjón var 18 ár í stjórn UMFÍ, enn lengur vann hann þó fyrir sitt héraðssamband Ung- mennasamband Skagafjarðar, en þar var hann formaður í um 30 ár. Hann þjálfaði sundlið UMSS og unnu Skagfirðingar marga sigra og stóra undir hans forystu. Landsmót UMFI var haldið á Sauðárkróki 1971. Það þurfti áræði og bjartsýni til að halda slíkt mót þar. En skemmst er frá að segja að það er eitt eftirminni- legasta landsmótið, aðstaða öll og skipulagning var þeim Skag- firðingum, undir forystu Guð- jóns sem þá var formaður, til mikils sóma. En það fór ekki hjá því að svo félagssinnaður maður og Guðjón er veldist til margra trúnaðar- starfa. Hann var bæjarfulltrúi á Sauðárkróki í 24 ár, þar af 4 sem forseti bæjarstjórnar, og formað- ur íþróttanefndar bæjarins í 32 ár. Auk þess sat Guðjón um tíma í Sambandsstjórn ÍSI og stjórn Sundsambands íslands. Guðjón hefur verið mikill gæfumaður í sínu einkalífi, á góða konu, Ingibjörgu Kristjáns- dóttur, og eiga þau 7 börn, sem bera þess vitni að hafa fengið gott veganesti. Það er gott að sækja þau hjón heim. Að síðustu færi ég vini mínum Guðjóni bestu hamingju og heillaóskir á þessum tímamótum og flyt honum þakkir Ung- mennahreyfingarinnar fyrir mikil og giftudrjúg störf. Ég á ekki betri ósk til handa æskulýð þessa lands, sem Guðjón hefur veitt svo mikið, en að fleiri slikir menn komi fram í dagsljósið, sannir hugsjónarmenn sem eru tilbúnir að leggja á sig ómælda vinnu til að láta hugsjónir rætast. Pálmi Gíslason SKINFAXI 5

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.