Skinfaxi - 01.02.1985, Síða 34
Armann Pétursson
Minning
A
Ég vil í örfáum orðum minnast
vinar okkar hjóna, Ármanns Pét-
urssonar aðalbókara, Eyvindar-
holti, Bessastaðahreppi. Ég ætla
því aðeins að minnast starfa hans
fyrir ungmennafélagshreyfing-
una. Ég fann það strax þegar Ár-
mann kom til starfa í stjórn Ung-
mennasambands Kjalarnesþings
að þar var áhugasamur og traust-
ur félagi. Ármann tók við for-
mennsku af mér eftir nokkur ár,
og gegndi henni síðan í þrjú ár
með mikilli prýði. Hann tók einn-
ig við af mér sem stjórnarmaður
í Ungmennafélagi íslands, sem
hann gegndi i 10 ár einnig með
miklum sóma.
Ármann var sannur ung-
mennafélagi, sem öll störf hans
að þeim málum sanna. Hann var
forustumaður um stofnun Ung-
mennafélags Bessastaðahrepps
og fyrsti heiðursfélagi þess.
Margt kemur upp í hugann þegar
starfa þessa góða drengs skal
minnst. Ég ætla þó aðeins að geta
þáttar UMSK og þess mikla starfs
sem sambandið vann með mikl-
um sóma undir traustri forustu
hans þegar við héldum landsmót-
ið á Þingvöllum 1957, en Ung-
mennafélag íslands var stofnað á
Þingvöllum 1907 og því þótti til-
hlýðilegt að halda sérstakt af-
mælismót sambandsins þar þá.
Landsmót UMFÍ höfðu þá í
gegnum árin verið glæsilegustu
samkomur íslenskrar æsku og
hafa síðan ávallt aukið hróður
sinn sem slík. Það er trú mín að
fáir geri sér grein fyrir hvaða
óhemju starf liggur að baki und-
irbúnings þessara móta og að
annast framkvæmd þeirra, en á
þessum vettvangi hafa ung-
mennafélagar um land allt sýnt
hvers hreyfingin er megnug.
Á stofnþingi UMFÍ 1907 var
rætt um áskorun sem barst frá
Ungmennafélagi Akureyrar, en
það félag var stofnað 1905, um að
„íþróttamót verði haldið fyrir ís-
land“. Þannig var hugmyndin að
landsmótunum þegar vakin.
Fyrsta mótið var svo haldið á
Akureyri 1909. 1911 var mótið
haldið í Reykjavík og aftur í
Reykjavík 1914. Síðan falla þessi
mót niður allt til þess að hinn
merki félagsmálafrömuður og af-
reksmaður í íþróttum, Sigurður
Greipsson að Haukadal vekur
máls á því á þingi UMFÍ 1938 að
endurvekja íþróttamót UMFÍ og
það varð að veruleika, mest fyrir
ötult starf hans, að mót er haldið
i Haukadal 1940 og hafa þau síð-
an verið haldin 14 sinnum. Um-
fang þeirra hefur aukist stórum,
sem er afrakstur mikils starfs
ungmennafélaga um land allt.
Það er mín skoðun að UMFÍ væri
allt annað og máske ekki til ef
mótin hefði ekki verið endurvak-
in 1940.
Ármann Pétursson var í undir-
búningsnefnd mótsins á Þingvöll-
um 1957 en aðstæður þar eru á
margan hátt erfiðar til slíkra
móta. Eftir á fullyrði ég að við
gerðum okkur ekki að fullu grein
fyrir því fyrirfram hvað við vær-
um að ráðast í.
Ármann var nokkrum sinnum í
undirbúningsnefndum landsmót-
anna og vísa ég frekar til umsagn-
ar um mótið 1957 svo og önnur
landsmót UMFÍ í hinni merku
bók „Ræktun lands og lýðs“ sem
gefin var út í tilefni 75 ára afmæl-
is sambandsins 1983 undir stjórn
Gunnars Kristjánssonar.
Ármann Pétursson var ávallt
reiðubúinn til að leggja fram sína
krafta til eflingar ungmennafé-
laganna. Ungur að aldri hreifst
hann af hugsjón ungmennafélag-
anna og var henni trúr alla tíð.
Það hefur verið gæfa hreyfingar-
innar að hafa átt á að skipa mörg-
um ágætis hugsjónamönnum,
körlum og konum, þeim eigum
við mikið að þakka.
í dag stendur UMFÍ traustum
fótum til að vinna að „ræktun
lands og lýðs“. Traustir áhuga-
menn eru í forustu, studdir þús-
34
SKINFAXI