Skinfaxi - 01.02.1985, Qupperneq 8
Ungt afreksíólk
Sigurður Matthíasson UMSE
Guðmundur Gíslason
í þessu og næstu blöðum er
ætlunin að kynna ungt afreksfólk
úr hinum stóra hópi ungra afreks-
manna aðeins með stuttu spjalli.
Sá sem varð fyrst fyrir valinu nú
er Sigurður Matthíasson. Hann
hefur lagt stund á fjölmargar
íþróttir um dagana, en er senni-
lega kunnastur fyrir afrek sin í
hástökki án atrennu. Rétt eftir
áramótin setti hann nýtt íslands-
met í þessari grein er hann stökk
1,85 m. og er það annar besti ár-
angur í heiminum í dag. Því ætlar
Skinfaxi aðeins að spjalla við
hann um íþróttir og fleira. Þess
má geta að Sigurður hefur keppt
fyrir U.M.S.E.
Hvenœr byrjaöir þú aö
stunda íþróttir?
Ja, ætli ég hafi ekki kynnst
þeim fyrst í sundlauginni hjá
pabba, en hann er íþróttakennari.
Og svo kom þetta smám saman að
maður fór að stunda hinar og
þessar íþróttir, og þá aðallega i
heimavistaskólunum, en pabbi
kenndi á svo mörgum stöðum er
ég var yngri. Mig minnir að við
höfum búið á einum 11 stöðum,
þó sennilega lengst í Reykholti,
þar sem við vorum allan daginn í
íþróttum. Það voru þá aðallega
fótbolti og körfubolti.
Varstu þd ekkert íarinn
að stunda írjdlsar íþróttir?
Nei, ekki neitt að ráði. Það var
ekki fyrr en ég kom í menntaskóla
að ég fór að stökkva hástökk án
atrennu og má segja að ég njóti
góðs af því að hafa stundað
körfubolta mikið því stökkkraft-
urinn þjálfaðist mikið við þá iðk-
un.
Þú hefur þá ekki ákveöiö
snemma hvaöa íþrótt þú
œtlaðir að stunda?
Nei, maður var bara í þessu
öllu og lagði ekki neina áherslu á
neina sérstaka íþrótt. Það er ekki
fyrr en núna sem ég er farinn að
hugsa um að taka einhverja grein
fyrir.
Manstu eftir einhverju
skemmtilegu móti?
Já, ég man vel eftir nýafstöðnu
íslandsmóti. Það var mjög fjöl-
mennt og skemmtilegt. Lang-
stökkið án atrenu þótti mér þó
skemmtilegast en þar háðum við
Gísli Sigurðsson harða keppni.
Ég verð að segja að ég hélt að ég
væri búinn að vinna með 3,30 m
og var farinn að hvíla mig fyrir
hástökkið. Þá stökk Gísli 3,33 m,
þannig að ég varð að taka á öllu ef
ég ætlaði að vinna, og næ að
stökkva 3,36 m sem er þriðji besti
árangurinn ennþá. Þess má geta
að Gústaf Agnarsson á metið sem
er 3,44 m sett í sjónvarpssal fyrir
nokkrum árum.
Finnst þér fjölmiölar gera
frjálsum íþróttum góö skil?
Stundum en ekki alltaf. T.d.
um daginn á mótinu á Selfossi,
sem var mjög gott mót hvað
fjölda keppenda og árangur
áhrærir, þá mætti sjónvarpið ekki
og enginn ljósmyndari og fannst
mér það nokkuð lélegt af þeim að
koma ekki á mótið.
Nú ert þú nýútskriíaður
íþróttakennari. Hvernig
Siguröur Matthíasson.
8
SKINFAXI