Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1985, Qupperneq 13

Skinfaxi - 01.02.1985, Qupperneq 13
þeim, sem ekki reykja, á að stund- um verða menn að sýna mikið langlundargeð til að ná markmið- um sínum og þótt auðvitað séu nokkrir þrákálfar, sem streitast við að fara að lögum, muni þeir á endanum láta undan festu um kurteisi. Keyri þrákelnin hins veg- ar um þverbak geta menn leitað réttar síns t.d. til Vinnueftirlits ríkisins og heilbrigðisnefnda. Reykingavandamálið er fyrst og fremst heilbrigðisvandamál, því þegar svo er komið að 5.—6. hvert dauðsfall á landinu er ótímabært af völdum reykinga þá verða menn að hafa þrek til þess að horfast í augu við slíkt og bregðast við því á skynsaman hátt. Það hefur sýnt sig að þegar hlutir fara loks af stað á Islandi þá gerast þeir fljótt. Fœrri reykja íleiri sígarettur Kannanir sýna að reykinga- Til lesenda Nú eins og oft áður er þörf á efni og hugmyndum um efni í blaðið okkar. Því vil ég hvetja ykkur öll til að senda eða hringja inn efni eða hugmyndir um efni í blaðið. Verið ekki pennalöt eða feimin við að láta vita hvernig ykkur finnst blaðið. Við tökum allri gagnrýni með þökkum hvort sem hún er góð eða slæm. Ekki segja við sjálfan sig „Oh hvað þetta er nú lélegt og leiðinlegt blað“ heldur látið vita um það sem ykkur finnst að. Þannig get- um við öll lagst á eitt um að gera blaðið öflugt og skemmtilegt. Verið því óhrædd við að láta heyra í ykkur. Þið vitið heimilis- fang okkar, er það ekki? Já, og símanúmerið 91-14317. Ég bíð spenntur eftir að heyra í ykkur. Ritstjóri mönnum fækkar, en sala á síga- rettum eykst. Það eru sem sagt færri sem reykja, en þeir sem reykja, reykja meira og það kem- ur m.a. til af því að það er sífellt minna nikotín í sígarettunum, það er hent lengri stubbum, þær eru léttari o.s.frv., það þarf sem sagt fleiri sigarettur til þess að ná sömu áhrifum. Allar líkur benda til að á næstu árum muni veru- lega draga úr reykingum vegna þess einfaldlega að þegar fólk kemst að raun um hættuna með aukinni þekkingu og fræðslu þá leiðir sjokkið til þess að menn hætta að reykja eða minnka það verulega, nema þar sem sjálfseyð- ingarhvöt ræður ferðinni og það er sem betur fer í undantekning- artilfellum. Á skynsemin aö ráöa? Hitt er svo að nýju lögin gera ekki síður ráð fyrir rétti þeirra Happdrœtti UMFÍ Nú er verið að undirbúa happ- drætti U.M.F.Í. og gera vinninga- skrá. Það verða margir og góðir vinningar að þessu sinni. Áætlað er að dregið verði 1. júlí n.k. þannig að sambönd og félög fá bráðum senda miða til að selja. Það er ekki að efa að þeir verða kærkomin sending, þar sem sölu- aðilar fá góð sölulaun fyrir. Við skulum því leggjast öll á eitt um að gera þetta happdrætti veglegt, bæði í vinningum og sölu. I næsta blaði munum við birta skrá yfir vinningana sem verða um 50 tals- ins. sem reykja þótt almenna reglan á opinberum stöðum og vinnustöð- um sé sú að reykingar eru tak- markaðar, en þessi lög eru dæmi- gerð um það að höfðað er til al- mennrar skynsemi og samvinnu einstaklinga og hópa um lausn á þessu máli þannig að hver njóti síns réttar án þess að það sé á kostnað hins, en líklega eru allir sammála um það þrátt fyrir allt að það sé óheyrilega dýrt að kaupa sígarettuna fyrir sjö mín- útur af lífi. Árni Johnsen Ein meö 8 karlmönnum Það er mjög algengt á fundum og þingum að menn kasti fram vísum af hinum ýmsu tilefnum. Vísa sú sem hér kemur á eftir varð til á sambandsráðsfundinum á Hvammstanga í vetur. Þar voru mættir margir fulltrúar og gestir en fáar konur voru þó þar á með- al. Ein þeirra varð þó þeirrar ánægju aðnjótandi að sofa í herbergi með 8 karlmönnum og varð þá þessi vísa til. Víst ég hefí víða náttað, veldur sá sem okkur skóp. Aldrei hef ég áður háttað, ein með slíkum karlahóp. SKINFAXI 13

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.