Skinfaxi - 01.06.1985, Blaðsíða 3
Slnnfaxi
3. tbl. - 76. árg. -1985
ÚtgefandL Ungmennaíélag Islands. • Ritstjóri:
Guömundur Gíslason. • Stjórn U.M.F.Í. Pálmi
Gíslason, íormaóur, Bergur Toríason, varalor-
maöur, Jón G. Guöbjömsson, gjaldkeri, Bjöm
Ágústsson, ritari, Guömundur H. Sigurósson, meö-
stjórnandi, Póroddur Jóhannsson, meöstjórn-
andi, Diörik Haraldsson, meöstjórnandi. • Aí-
greiösla Skinfaxa: Skriístoía U.M.F.Í. Mjölnisholti
14. Reykjavík, sími 14317 • Setning, umbrot og
filmugerö: Prentþjónustan hí. • Prentun: Prent-
smiöjan Rún st.
Meöal efniS:
Bls.
Golf á Eskiíirði ......... 4
Á seglbretti ............. 7
Bridge ...................ÍO
Íþróttaíréttir
írá HSK ................. 12
Hin hliðin............... 15
Útisamkomur ............. 16
Skákþáttur .............. 18
Spjallað við
Helga Arngrímsson ....... 19
Vísnaþáttur.............. 24
Framkvœmdastjóra-
námskeið .................25
Hvaða íugl er þarna? ... 26
Tóbaksvarnir .............30
Forsíöumynd:
Hún er tekin upp við Rauðavatn
og er aí einum mjög ílinkum á
seglbretti eins og sjá má.
Leiörétting
í síðasta blaði féll niður helm-
ingur af fyrirsögninni á leiðaran-
um. En hún átti að vera þessi:
Félagshyggja og einstaklings-
hyggja eða „Nú get ég hyggja“.
Beigur Toifason
Námsstefna
hvaö er nú
Fyrstu dagana í júní var haldið námskeið eða námsstefna að
Núpi í Dýrafirði fyrir starfsfólk héraðssambanda innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar. Námsstefnan fór fram eins og
áformað var og þóttist takast vel. Þó þótti einn ljóður á henni það
vantaði fólk frá ýmsum héraðssamþöndum, og sérstaklega úr
þeim landshluta sem hún var haldin í. Nú er það svo að það hafa
ekki öll héraðssambönd ráðið sér starfsfólk, og telja þá gjarnan
að þau hafi því ekkert fólk að senda. En þetta er misskilningur,
þessar námsstefnur eru ekki formlegur skóli þar sem einn er fræð-
arinn og allir hinir nemendur. Nei hér hittist nýráðið starfsfólk og
gamalreyndir í starfi og einn kennir öðrum, tekin eru fyrir þau
verkefni sem héraðssamböndin ætla að vinna að á næstunni. Sum
þessara verkefna eru skipulögð af landssamtökum okkar Ung-
mennafélagi íslands og þarna eru þau kynnt og rætt um hvernig
best sé að framkvæma þau. Önnur eins og sumarbúðir, íþrótta-
mót og útihátíðir eru flest héraðssambönd með á stefnuskrá en
misjafnlega reynslurík. Þau héraðssambönd sem engan fastráðinn
starfsmann hafa eiga því jafnmikið erindi á þessar námsstefnur,
og á hverju ári eru tekin upp ný verkefni sem þörf er á að kynna.
Þá síðast en ekki síst kemur á hverju ári nýtt fólk til starfa hjá
samböndunum. Nú heyrum við það stundum að óþarfi sé að hafa
starfsmanna hjá héraðssamböndum, já jafnvel óþarfi sé að hafa
héraðssamband, því félögin sjái um þjálfun og íþróttamót. Mér
finnst helst hafa borið á þessu þar sem félög innan sambanda eru
mjög misstór eða standa félagslega misjöfn að vígi, kannski eitt
sem ber höfuð og herðar yfir hin. Þessi skoðun er hættuleg félags-
skap okkar, við eigum að minnast þess að engin keðja er sterkari
en veikasti hlekkur hennar. Það er því hagur okkar allra að vinna
saman og rétta þeim hönd sem hallari fæti stendur. Það gerum við
t.d. með því að koma saman á námsstefnur sem þessar og fræðast
af þeim sem reynsluna hafa eða miðla þeim sem óreyndari eru.
Mörgum vaxa erfiðleikarnir í augum sem við blasa í félagslegu
starfi, ekki sist í fámennum héruðum. En þeim hinum sömu mun
það léttir og hvatning að finna að það eru fleiri sem eru að fást
við sömu eða svipuð vandamál, og oft finnst þá líka lausn sem
áður virtist ekki til.
SKINFAXI
3