Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1985, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.06.1985, Blaðsíða 9
Ásta Kata hœttii og Svana tekui vlö Nú í byrjun júní hætti Ásta Katrín Helgadóttir störfum hérna á skrifstofunni, en nún hafði unnið hér undanfarin ár. Hún hefur nú flutt til Siglufjarðar og ætlar að búa þar um ókomna framtíð. Við starfi Ástu tók Svan- hildur Kristjónsdóttir frjáls- íþróttakona úr UMSK. Um leið og UMFÍ þakkar Ástu fyrir góð störf og óskar henni alls hins besta í framtíðinni býður UMFI Svanhildi velkomna til starfa. Ásta Katrín og Svanhildur. Rœktun lýös og lands Saga UMFÍ Ræktun lýðs og lands sem kom út fyrir tæpum tveimur árum hefur ekki fengið þá sölu sem við var búist. Er eins og ungmennafélagar hafi ekki tekið eftir því að bókin sé komin út. Er þetta miður þar sem hér er um að ræða mjög góða bók sem hver ungmennafélagi ætti að eiga. í henni er saga UMFÍ frá upphafi rakin í máli og myndum. Er bók- inni skipt niður í efniskafla eins og landsmótin, iþróttir og Skin- faxi og svo frv. Því vill Skinfaxi benda mönnum á að þessi eigu- lega bók fæst á skrifstofu UMFÍ og einnig hjá héraðssamböndum og kostar kr. 1.000. Góöar skýrslur í apríl s.l. komu út skýrslur yfir öll ungmenna- og íþróttafélög í landinu, einnig skýrsla yfir öll íþróttamannvirki. Eru skýrslur þessar unnar af Þorsteini Einars- syni fyrrum íþróttafulltrúa og fjölfaldaðar í Menntamálaráðu- neytinu. Er mjög mikill fengur í skýrslum sem þessum þar sem þær auðvelda mjög að gera sér grein fyrir iþróttastarfsemi í land- inu. En í skýrslum þessurn er greint frá öllu því helsta í sam- bandi við félög og íþróttamanna- virki, stærð, byggingarár og stað- setningu mannvirkja og stofnára og starfsemi félaga. Vill Skinfaxi þakka Þorsteini fyrir þetta mikla verk sem gerð slikra skýrslna hlýt- ur að vera. SKINFAXI 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.