Skinfaxi - 01.06.1985, Side 12
Iþróttctíréttii írá HSK
Jón M. ívarsson
íþróttastarf HSK hefur verið
mjög öflugt í vetur að vanda. Þær
innanhússíþróttir sem víðast eru
stundaðar, eru körfubolti, blak
og frjálsíþróttir að ógleymdu
sundinu.
Héraðssambandið Skarphéð-
inn hefur nú á að skipa öflugasta
sundliði landsins og sigraði glæsi-
lega í bikarkeppni SSI í haust.
Mesta afreksfólk sambandsins
eru systkinin Magnús og Bryndís
Ólafsbörn, sem sett hafa hvert ís-
landsmetið á fætur öðru undan-
farið, og svo íþróttamaður HSK
1984 Tryggvi Helgason, sem nú
æfir sund í Bandaríkjunum og
hefur sýnt stöðugar framfarir að
undanförnu.
Blaklið HSK keppti í II deild
íslandsmótsins i blaki og náði þar
öðru sæti í vetur eftir harða
keppni við KA.
Frjálsíþróttafólk HSK er í
mikilli sókn um þessar mundir.
Unglingastarfið hefur borið góð-
an ávöxt og á M.I. 15—18 ára í
vetur unnust 12 íslandsmeistara-
titlar.
Jón A. Magnússon, 16 ára
Gnúpverji setti sveinamet í þrí-
stökki, 13,26 m.
Guðbjörg Viðarsdóttir, 14 ára
stúlka úr Austur Landeyjum setti
íslandsmet telpna í kúluvarpi
9,86 m. í skólakeppni FRÍ nú í
vor. Suðurland sigraði í keppn-
inni, en allir keppendur Suður-
lands voru frá HSK.
Á héraðsmóti HSK innanhúss í
vetur setti Ingibjörg Ivarsdóttir
íslandsmet í þrístökki án atrennu
8,08 m.
HSK átti fjóra keppendur á
leikum smáþjóðanna í San
Marínó nú nýlega. Voru það syst-
kinin Bryndís Ólafsdóttir og
Magnús Ólafsson, sem kepptu í
sundi og Pétur Guðmundsson og
Soffía R. Gestsdóttir sem kepptu
í kúluvarpi. Öll unnu þau til gull-
verðlauna og áttu stóran hlut í
sigri íslenska liðsins.
Glima er nú óvíða stunduð á
landinu, en HSK er þó eitt af
þeim samböndum er heldur
merki glímunnar á lofti.
Skjaldarglíma HSK 1985 var
haldin að Laugalandi í Holtum 4.
apríl s.l. Þar kepptu 24 glímu-
menn í þremur aldursflokkum og
voru glímur alls 103.
í drengjaflokki sigraði Haf-
steinn Hannesson, Umf. Ingólfi
og í unglingaflokki sigraði Kjart-
an Ásmundsson Umf. Hvöt.
Sigurvegari í karlaflokki sem
jafnframt er hin eiginlega skjald-
arglíma HSK, varð Kjartan
Helgason Umf. Hvöt. Hlaut
hann til varðveislu glímuskjöld
Skarphéðins, sem er án vafa veg-
legasti verðlaunagripur sam-
bandsins. Er það ágrafinn silfur-
skjöldur og á viðfestum silfur-
peningum eru nöfn hvers skjald-
arhafa frá upphafi. Um skjöldinn
hefur verið keppt frá árinu 1910,
eða allt frá stofnun Skarphéðins.
I tilefni af ári æskunnar var
efnt til skólahlaups HSK í öllum
skólum á sambandssvæðinu, en
þeir eru 28 talsins. Fyrst var
hlaupið í hverjum skóla fyrir sig
og síðan komu þeir bestu til úr-
slitahlaups að Laugarvatni 17.
apríl s.l. Nemendur ÍKI sáu um
framkvæmd hlaupsins og voru
þar 160 þátttakendur í fjórum
flokkum. Barnaskóli Selfoss sigr-
aði í stigakeppni skólanna og
12
SKINFAXI