Skinfaxi - 01.06.1985, Síða 24
Vísnccþáttur Skinfaxa
I síðasta þætti sendi Pálmi
Gíslason „boltann“ til Helga
Seljan og það stóð ekki á svari hjá
honum frekar en fyrri daginn.
En Helgi, eins og allir sem hafa
gaman af kveðskap vita, er bæði
góður hagyrðingur og hann er
greinilega í góðri þjálfun líka, en
þessa 'þrótt þarf að æfa eins og
aðrar.
Hér kemur svo árangurinn af
samstarfi Pálma og Helga:
Ríkissíjórnin ráðlaus er
reynir þó að lafa.
Þjóðin sefur því er ver
en þetta vild ’ún hafa.
Flestir hafa lítil laun,
en tifa af gömluin vana.
Og ýmsir vinna ekki baun,
en aðrir við þá stjana.
Ekkert fár né trega tár
tengist ári þessu.
Argir krármenn ýfa sár
ymja dáramessu.
J.S. hefur ekki látið í sér heyra
lengi en nú hefur hann gripið
pennann og eftir því hvernig hann
hefur vísurnar finnst mér hann
ekki stórhrifinn af ríkisstjórn-
inni.
Ríkisstjórnin ráðlaus er
reynir þó að lafa.
Gerði þessi huldu her
húsbyggjendum klafa.
Flestir hafa lítil laun
en lifa af gömlum vana
það er að verða þyngsta raun
að þrauka og forðast bana.
Ekkert fár né trega tár
tengist ári þessu.
Þótt stjórnar klárinn kvalin sár
kúri á blárri sessu.
Það er engu líkara en blessuð
ríkisstjórnin fái almennt á bauk-
inn í þættinum að þessu sinni því
N.N. sendir þetta:
Ríkisstjórnin ráðlaus er
reynir þó að lafa.
Þegar hún til fjandans fer
flestir veislu hafa.
Flestir hafa lítil laun
en lifa af gömlum vana.
Verkalýðnum reynist raun
að ráð skuldum bana.
En þá er komið að „boltanum“
sem Helgi Seljan sendir Sigurður
Ó. Pálssyni Egilsstöðum, með
þessum fyrripörtum.
Enn fer vor um austurland
óma hörpustrengir
Undur þrái ég austur nú
ungviðinu að sinna.
Og þar sem siður er að hafa
fyrripartana þrjá bætum við ein-
um við handa Sigurði í sama dúr,
(eða næstum því).
Tinda fjalla sjaldan sjá
svo er um allu firði
Með bestu kveðju
Ásgrimur Gíslason.
24
SKINFAXI