Skinfaxi - 01.06.1989, Blaðsíða 4
Frá
ritstjóra...
Er það ekki sjálfgefið að allt sé á réttri leið
hvað varðarstöðu kvenna innan íþróttanna?
Að í nútíma þjóðfélagi sé ekki lengur um þá
fordóma og fáfræði að ræða sem áður voru
fyrir hendi?
Það væri nú ánægjulegt ef myndin væri
þetta ánægjuleg sem við bregðum upp hér í
blaðinu. Að þessu sinni er tekin fyrir staða
kvenna í íþróttum. Hún er að sjálfsögðu
ákaflega mismunandi. Samkvæmt því sem
Ingibjörg Hinriksdóttír segir í grein hér í blaðinu
um knattspyrnu kvenna, fær kvenna-
knattspyrnan allt of litla athygli fjölmíðla og
forystumanna í knattspyrnuhreyfingunni. Oft
haldast þessi tvö atriði í hendur; athygli
fjölmiðla og athygli ráðamanna. Hjördís
Árnadóttír, íþróttafréttamaðurá RÚV, svarar
þessu fyrir sína hönd í viðtali á þann veg að
athygli fjölmiðla fari fyrst og fremst eftir því
hvernig íþróttamennirnir standi sig, karlar
sem konur. Hjördís bendir einnig á að
ráðamenn félagannasetji oft mestfjármagnið
í meistaraflokk karla í boltaíþróttum, síðan í
yngri strákana og afganginn, sem þá er oft
orðinn rýr, til kvenfólksins. Það er því margs
að gæta í þessum málum.
Þórdís Gísladóttir, frjálsíþróttamaður, bendir
á það í viðtali hér í blaðinu að það vanti konur
f stjórnir félaganna. Þórdís segir að konur hafi
ekki verið nógu duglegar að koma sér í
áhrifastöður í íþróttahreyfingunni þarsem það
er oft ákveðið hverjir fá athyglina.
Þórdís bendir eínníg á að hlutskípti kvenna
sé ekki saman að jafna í frjálsíþróttum og
flokkaíþróttum. Árangurkvenna ífrjálsíþróttum
miðast ekki við næsta félaga jafn mikið og í
flokkaíþróttum. Frjálsíþróttakonan er metin á
eigin árangri. Konur í flokkaíþróttum þurfa
hins vegar á mun meíri stuðningi að halda frá
sínu félagi og sínum félaga.
Það sem færir þessi mál.til betri vegar er opin
og fjörleg umræða þar sem fólk viðrar ólíkar
skoðanir og kemst að einhverri sameiginlegri
niðurstöðu. Á þetta hefur skort nokkuð að
undanförnu. Skinfaxi er opinn fyrir þessari
umræðu.
Útgefandi: Ungmennafélag íslands. - Ritstjóri:lngólfur Hjörleifsson. -
Ábyrgöarmaður: Pálmi Gíslason. - Stjórn UMFÍ: Pálmi Gíslason, formaður, Þórír
Haraldsson, varaformaður, Þórir Jónsson, gjaldkeri, Guðmundur H. Sigurðsson,
ritari. Meðstjórnendur:Dóra Gunnarsdóttir, Kristján Yngvason, Sigurbjörn
Gunnarsson. Varastjórn: Magndís Alexandersdóttir, Hafsteinn Pálssson, Matthías
Lýðsson, Sæmundur Runólfsson. - Afgreiðsla Skinfaxa: Öldugata 14, Reykjavík,
S:91-12546 - Setning og umbrot: Skrifstofa UMFÍ. - Prentun: Prentsmiðjan Oddi. -
Pökkun: Vinnustofan Ás.
Allar aðsendar greinar er birtast undir nafni eru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ekki
stefnu né skoðanir blaðsins eða stjórnar UMFÍ.
4
SKINFAXI