Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1989, Page 10

Skinfaxi - 01.06.1989, Page 10
vandræðunum. Þær stelpur áttu mikið hærri stökk en 1.73. Hástökkskeppnin vannst síðan á 1.93 m. En ég man að þegar ég var að ganga út af vellinum einsetti ég mér að þetta sky ldi ekki gerast aftur. Ég sagði við sjálfa mig: „Þórdís, þetta kemur aldrei fyrir aftur. Annað hvort gerir þú eitthvað í þessu eða hættir.” Það kom svona mikill metnaður í mig við þessa lífsreynslu.” Olympíufarar tala allir um þá miklu og ógleymanlegu reynslu sem opnunarhátíðir Olympíuleika eru. Hin 15 ára Þórdís Gísladóttir var engin undantekning. „Opnunarhátíðin varalvegstórkostleg upplifun og engu öðru lík. Þegar við komum inn á völlinn gengum við eina 200 metra eftir brautinni og stilltum okkur síðan upp inni á vellinum. Mér fannst hins vegar eftir á að við hefðum gengið marga hringi. Þetta var allt svo stórt og mikið að ég missti alla yfirsýn. En þetta var lífsreynsla sem maður býr að alla æfi. Fráleitt að keppa á Ólympíuleikum Eftir á hef ég hins vegar áttað mig á því að ég var ekki nægilega vel undirbúin fyrir þessa leika. Þetta gerðist mjög óvænt. Ég setti Islandsmet í hástökki um sumarið, á Norðurlanda-bikarkeppni kvenna sem vakti mikla athygli og náði þar með lágmarki fyrir leikana. Þar með var það svo til sjálfgefið að ég keppti þar. En mér hefði auðvitað þótt það fráleitt að keppa á Ólympíuleikunum ef það hefði verið nefnt við mig nokkru fyrr. En þegar slíkt var orðið staðreynd var auðvitað ekkert annað að gera en að standa sig. Annars var það dálítið einkennilegt að ég var eftir hástökkskeppnina næstum viss um að ég ætti ekki eftir að fara aftur á Ólympíuleika. Ég hugsaði sem svo að þá væri ég a.m.k. búin að fara á Ólympíuleikana og ég hafði á tilfinningunni að það gerðist ekki aftur. Það er auðvitað kannski sérkennilegt að 15 ára stelpa sem er komin á Ólympíuleikana sé að velta því fyrir sér að þessir séu hennar síðustu. Síðan hef ég farið í annað hvort skipti. Ég var tveimur sentimetrum frá lágmarki Moskvuleikanna. Þá var valið á milli þeirra sem voru næst lágmörkunum, ég var ekki valin og var fegin því. Ég vildi ekki fara nema hafa náð lágmarki. Svo komst ég til Los Angeles '84 en ekki til Seoul. Kannskiégkomisttil Barcelona”, segir Þórdís hlæjandi. „Ætli það fari samt ekki helst eftir því hvernig mér gengur með barnið”, segir Þórdís og tekur um magann. Hvernig var með aðrar greinar? Nú hefur þú verið meira en liðtœk í fjölmörgum greinum, t.d. stuttu hlaupunum. „Já. Ég fór að hlaupa með hástökkinu mjög fljótlega og mér finnst það hafa komið mér mjög vel. Ætli Guðmundur hafi ekki vitað þetta þegar hann setti mig með íaðrargreinar. Svo ég fengi nú ekki leið á hástökkinu of fljótt. Ég æfi svo alltafgrindahlaupiðmeðhástökkinu. Það er mjög gott upp á taktinn að gera í stökkinu. Ekki lengur unglingsgrey Svo skipti ég um þjálfara 1979 þegar Þráinn (Hafsteinsson, frjáls- íþróttaþjálfari, íslandsmethafi ítugþraut og eiginmaður Þórdísar) fer að þjálfa mig. Þá kemur inn í minn feril mikið öðruvísi og markvissari þjálfun. Ég var ekki lengur unglingsgrey og kynntist nú meiri skipulagningu í æfingaáætlun, uppbyggingu fyrir keppnistímabil og öðru þess háttar. Það var kannski happ fyrir mig að Guðmundur Þórarins var einn með alla IR þjálfun og hafði því ekki tíma til að einbeita sér um of að mér. Það er nauðsynlegt að taka þetta í þrepum, sérstaklega þegar ferillinn er svona langur. Það er hægt að eyðileggja efnilegt fólk með því að keyra með það í of stranga þjálfun á unga aldri. Það verður að vera hægt að taka hlutina í þrepum kynnast nýjum hlutum í áföngum, fá alltaf eitthvað nýtt að glíma við. Ég var svo heppin að geta það.” Það hefur ekki verið um aðrar íþróttagreinar að rœða hjá þér? „Það er náttúrulega dálítið óvenjulegt með mig að ég er komin á Ólympíuleika 15 ára og þar með búin að velja mína grein mjög snemma. Það þýðir ekki fyrir mig að vera síðan að hlaupa út um allt á alls konar æfingum. En ég æfði blak aðeins með þessu, einnig sund áður en ég varkomin á fullt ífrjálsum. Blakið var ágætt með hástökkinu til að byrja með, ekki svo erfið íþrótt og góð fyrir stökkkraftinn. Enþaðvarfljótlegaorðið þannig að ég var að koma koma heim klukkan tólf á svo til hverju kvöldi af því að ég fór á blakæfingu eftir frjálsíþróttaæfingu. Það gekk auðvitað ekki lengi. Þetta var á skólaárunum í Versló.” En hvencer skiptir þú úr IR yfir í Skarpéðin ? „Það var '85, held ég.” Nú brosir Þórdís. „Það má segja að ég hafi gifst inn í HSK”, segir hún og hlær. „Það var um svipað leyti og ég giftist Þráni. Við fluttum á Selfoss og rákum þar fyrirtæki með foreldrum Þráins. En ég hef alltaf taugar til ÍR þó mér finnist alveg jafn skemmtilegt í HSK, þar hef ég kynnst Þórdís á Vormóti HSK á Selfossi í vor ásamt Oddnýju Arnadóttur, IR og Geirlaugu B. Geirlaugsdóttur, Armanni. 10 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.