Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1989, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.06.1989, Blaðsíða 11
Þórdís yfir ránni meðan húnvar enn íIR. DV mynd. góðu fólki og líkar vel. En margir mínir bestu vinir eru líka í ÍR.” Landsmótið á Húsavík er því fyrsta Landsmót Þórdísar sem keppanda. „Mér fannst það dálítið kyndugt þegar við vorum í rútunni á leiðinni til Húsavíkur að fólk var að tala um fyrri Landsmót, einhverjir höfðu verið á þetta og þetta mörgum Landsmótum. Þarna var ég líka búin að vera í frjálsíþróttum í 15 ár og var að fara á mitt fyrsta Landsmót sem keppandi! Landsmótsrómantík Ég hafði tvisvar verið áhorfandi á Landsmóti, það var á Selfossi og síðan á Akureyri. Selfosslandsmótið varð reyndar sögulegt og skemmtilegt því þar kynntist ég Þráni fyrst. Svona dálítil Landsmótsrómantík! Svo var það einnig að ég var að jafna mig eftir meiðslin á Ólympíuleikunum þegar ég skaddaði liðþófa í hné, eins og ég sagði frá hér fyrr. Ég átti að fara í uppskurð bráðlega og mátti eiginlega ekki fara áþetta Landsmót. En hugsunin um að komast í mörg þúsund manna tjaldbúðir á þessu mikla íþróttamóti var ómótstæðileg. Ég var að vinna í banka þetta sumar, gat varla stigið í fótinn og sama dag og ég ætlaði austur á Landsmótið þurfti faðir minn að sækja mig í bankann. Ég átti að fara í myndatöku vegna þess að það var nýbúið að ákveða að ég skyldi skorin upp. Ég var hins vegar óð í að komast austur. Ekki bætti það úr skák að ég festi mig í liðnum þar sem ég sat við vinnu mína. Það lagaðist reyndar um leið og ég hreyfði mig eitthvað. En ég hljóp um stofurnar heima til þess að sýna fram á að ég gæti vel farið á Landsmótið, væri stálslegin. Það gat sem sagt ekkert stöðvað mig og það varð úr að ég fór. Og þar kynntist ég Þráni. Erfitt aö byrja aftur í 1.30 En næstu jól var ég skorin upp og svo fórum við út árið eftir til Kanada til að æfa. Ég þurfti að ná mér upp eftir uppskurð og það var erfitt að þurfa að byrja að stökkva 1.30 þegar ég átti best 1.76m. En Þráinn hjálpaði mérgeysilega mikið, var þolinmóður og laginn við að stappa í mig stálinu. Áður en við fórum til Kanada fórum við í þriggja vikna æfingabúðirtil Italíu, vorið '79. Á Ítalíu kynntumst við kanadíska lands- liðsþjálfaranum í hástökki og hann bauð okkur að koma til sín næsta vetur, sem varð úr. Kanadadvölin varð árangursrík sem sýndi sig í því að seinni hluta þess sumars stökk ég aftur 1.76, á mínu fyrsta móti. Þetta ár bætti ég mig mikið því ég fór þá upp í 1.80 m. Það var stúlknamet og stendur enn.” Við rœðum nœst neikvæðu hliðina á ströngum íþróttaferli. „Meiðslin eru það sem setur strik í reikninginn varðandi það að njóta þess að eyða öllum þessum tíma í íþróttir. Ég hef lent einum 4 til 5 sinnum í meiðslum sem hafa sett mína æfingaáætlun úr lagi. Ég hef oft byrjað vel. Náð góðum stökkum á fyrstu mótum sumarsins og lofað góðu en svo hefur engin breyting orðið, engin framför. Þá veit fólk kannski ekki að því að ég hef átt í meiðslum eins og hefur gerst hjá mér. Sérstaklega seinni árin og það er töluvert spælandi. Til dæmis þegar Evrópubikarinn var hér 1985, þegar ég náði 2. sæti í hástökkinu með 183 m. Þá voru hásinarnar á mér í skralli eftir að ég hafði meiðst alvarlega á móti erlendis. En það munaði miklu hvort ég keppti eða einhver önnur. Mér versnaði a.m.k. stórlega eftir þessa keppni. Tefldi á tæpasta vað Kannski var ég að tefla á tæpasta vað en mér fannst það skylda mín að vera með. Við svona aðstæður hefur verið gott að hafa þjálfaraeins og Þráin. Þegar maður var farinn að halda að maður kæmi ekki aftur eftir þessi meiðsli, þá sagði Þráinn: „Víst kenturþú aftur. Þetta SKINFAXI 11

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.