Skinfaxi - 01.06.1989, Síða 20
Kvennaknattspyrna
Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar um ástandið í
knattspyrnu kvenna
4.flokkur Breiðabliks íkvennaflokki 1988. Gott starfer nú unnið innan Breiðabliks
í kvennaknattspyrnu. Eitt dœmið er Gull og Silfur mótið sem haldið hefur verið
árlega fyrir 3. og 4.flokk kvenna síðustu 4 ár.
1982. Hlutdeildkvennaíknattspyrnunni
í heild er kannski ekki mikil en engu að
í sumarbyrjun ár hvert fyllast allir
fjölmiðlar sem fjalla um íþróttir af
umfjöllun um knattspymu. Spáð er í
spilin, hvar ætli þetta eða hitt liðið hafni
í deildinni. Tekst Fram að verja titilinn
eða verða Valsarar sterkari. Falla FH-
ingar eða verða það Víkingar sem þurfa
að bíta í það súra epli.
Misvitrirknattspymuspekingarskeiða
fram á ritvöllinn eða setjast fyrir framan
hljóðnemann og spá um úrslit ieikja.
Spárnareru að sjálfsögðu misjafnar, hver
og einn á sitt uppáhaldslið og fæstum
þessara manna tekst að spá rétt til um
úrslit enda er enginn leikur unninn
fyrirfram. En allir þessir spekingar eiga
eittsameiginlegt, þettaerualltkarlmenn
að spá um úrslit í leikjum annarra
karlmanna.
Toppurinn á
karlmennskuímyndinni?
Knattspyman hefur oft verið álitin
toppurinn á karlmennskuímyndinni í
íþróttum. Það voru karlmenn sem fyrstir
léku knattspyrnu, það eru karlmenn sem
þjálfa ungadrengi íþessari göfugu íþrótt
og síðast en ekki síst það eru karlmenn
sem halda um stjórnvölinn á toppnum,
bæði í félögunum og hjá Knattspyrnu-
sambandinu.
Það sem oftast gleymist er það að
það eru fleiri en karlmenn sem æfa og
leika knattspyrnu. Nú á síðari árum
hefur knattspyrnan notið æ meiri
vinsældahjástúlkum. Leikiðhefurverið
í deildakeppni frá 1972 og leikið hefur
verið í yngri flokkum kvenna frá árinu
síður athygli verð.
Lítil athygli
Stúlkur koma aldrei til með að standa
jafnfætis karlmönnum í knattspyrnu og
er þar líkamsburðum fyrst og fremst um
að kenna, eða þakka! Engu að síður
standa þær þeim Iítt að baki hvað varðar
tækni og kunnáttu á leiknum sjálfum.
Þessi kunnátta þeirra og leikni fær því
miður alltof litla athygli fjölmiðla og
forystumanna knattspyrnuhreyf-
ingarinnar. Þeirsem hafahaftafskipti af
kvennaknattspyrnu hafa oft hreinlega
gefist upp vegna þess að störf þeirra hafa
ekki hlotið þá athygli sem þeim hefur
fundist að hún ætti skilið. Þessir aðilar
hafa oftar en ekki verið karlmenn.
Karlmenn, sem eru vanir því að hljóta
meiri athygli fyrir störf sín, bæði innan
þess félags sem þeir starfa fyrir og
stjómar KSÍ. Það er þessi skortur á
athygli sem helst hefur verið
umkvörtunarefni þeirra sem starfa að
málefnum kvennaknattspyrnunnar sem
og stúlknanna sjálfra.
KSÍ er langfjölmennasta sér-
sambandið innan Iþróttasambands
Islands. Stjórn þess er skipuð
karlmönnum sem líta á knattspyrnuna
sem sitt annað líf og völlinn sem sitt
annað heimili.
Þessi menn hafa átt veg og vanda af
þvf að byggja upp marga af þeim
knattspyrnumönnum sem nú gera
garðinn frægan erlendis. Framtak
þessara manna verður seint fullþakkað
og störf þeirra eru meðal þeirra
óeigingjörnustu sem fyrirfinnast. En
betur má ef duga skal.
Margir þessara manna hafa aldrei séð
stúlkur leika knattspymu og fæstir þeirra
hafa nokkru sinni haft afskipti af
kvennaknattspyrnu.
Afstaða KSÍ
Vegna þessa líta stúlkur sem iðka
knattspyrnu oft hornauga til þeirra sem
stjóma og mörgum þeirra er beinlínis
meinilla við forystu KSÍ. Þessi afstaða
á að mörgu leyti rétt á sér. Afstaða KSI
til kvennaknattspyrnu hefur ekki verið
20
SKINFAXI