Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1989, Page 22

Skinfaxi - 01.06.1989, Page 22
knattspyrnunni. í 9. grein laga KSÍ stendur orðrétt: “Stjóm KSI skal strax að loknu ársþingi skipa eftirtaldar nefndir: Aganefnd Dómaranefnd Kvennanefnd Landsliðsnefnd Mótanefnd Tækninefnd Unglinganefnd” Og hverjar eru efndimar við þessa 9. grein? Það var skipað í allar nefndimar nema Kvennanefnd. Ástæður þess eru ekki kunnar en vissulega hafa heyrst raddir um að enginn stjómarmanna KSI hafi viljað taka starfið að sér. Neyddir í starfið Það hefur verið altalað meðal þeirra sem bera hag kvennaknattspymunnar fyrir brjósti að þeir stjómarmenn innan KSI sem hafa gengt formennsku í þessari nefnd hafi verið hálfpartinn neyddir til þess að taka starfið að sér. Þrátt fyrir það er næstum óhætt að fullyrða að þeir sem hafa starfað með stúlkunum hafa undrast á getu þeirra og öðlast meiri skilning á framgangi kvennaknattspyrnunnar. í ársskýrslu KSÍ 1987 segir m.a.: “Út á víð er liðsheildin sterk og samhent og mjög til fyrirmyndar í allri framgöngu og knattspymulega séð ekki svo miklir eftirbátar hinna þýsku stallsystra sinna...en reynslan var ekki söm og undirbúningur okkar allur minni en þeirra... Nokkrir aðilar hafa látið sig skipta íslenska kvennaknattspymu, en ekki nógu margir, leyfi ég mér að segja, en þökk sé KSI fyrir þetta framtak og þökk sé þeim sem studdu til átaka konurnarokkar, sem börðust og börðust, en þarf ekki að kalla fleiri til verka? Ég er nú heldur betur á því hafandi sjálfur verið í áranna rás fremur fáskiptinn um þessi mál og jafnvel lagt eyrun við úrtöluröddum. Þar skortir mig víðsýni og jafnvel þor, sem ég vil nú gjarnan bæta fyrir með því að leggjast á sveif með þeim sem vel vilja kvenna- knattspyrnu á íslandi. Okkur ber skylda til að hlúa vel að þeim frjóanga sem skotið hefur kolli úr jörð, hann skal verðameiðurhár, sem teygirgreinarum landið allt. Gefum íslenskum knattspymukonum Þeirra er framtíðin! fleiri tækifæri til að sanna sig í keppni við stöllur sínar erlendar, þar er verk að vinna.” Það skyldi þó aldrei vera að Rafn Kvennaknattspyrna á Landsmótinu í Mosfellsbæ Ákveðið hefur verið að á 20. Landsmóti UMFÍ að Varmá í Mosfellsbæ verði keppni I krtatt- spymu kvenna. Á undanfömum Landsmótum hefur verið keppt í knattspymu karla en nú skal bætt þar víð og verður keppt í tvemur riðlum, A og B. riðli. Hjaltalín, sem á heiðurinn að ofangreindri skýrslu, hafi hitt naglann á höfuðið þegar hann játar að hann hafi skorl víðsýni og jafnvel þor til þess að hlúaað íslenskri kvennaknattspyrnu. Er það kannski aðeins kjarkleysi og skortur á víðsýni sem er þess valdandi að í dag er ekkert kvennalandslið, aðeins 7 lið í l.deild kvenna og 2 lið í 2. deild (nei, þetta er ekki prentvilla það eru aðeins 2 lið í 2,deild). Ef svo er þá ættu stjórnarmenn KSI og þeirra félaga sem ekki hafa kvennaknattspyrnu á sínum snærum að hleypa í sig kjarki til þess að búa vel að stelpunum sent vilja leika knattspyrnu, þeirra er framtíðin. Ingibjörg Hinriksdóttir Höfundur hefur mikið starfað að knattspyrnumálum, m.a. innan Breiðahliks.. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.